- What: The BBC World Service is facing significant funding challenges that could impact its operations.
- Impact: Potential cuts could weaken the BBC's ability to combat disinformation and maintain its global news presence.
BBC World Service, alþjóðleg útvarpsstöð breska ríkisútvarpsins, stendur frammi fyrir verulegum rekstrarvanda ef ekki næst að semja um fjármagn til rekstursins við breska utanríkisráðuneytið innan 7 vikna. Stærstur hluti rekstrarfjár útvarpsstöðvarinnar, eða 400 milljónir punda, kemur frá útvarpsgjöldum en breska utanríkisráðuneytið lagði til 137 milljónir punda á síðasta ári. Tim Davie, forstjóri BBC, varaði við því í viðtali við Guardian að skera niður fjárframlög til útvarpsstöðvarinnar. „Vestrænir fjölmiðlar eru að skera niður erlendar fréttadeildir sínar, upplýsingaóreiða flæðir um starfræna umhverfið á ótrúlegum hraða og ríkisstyrkt fjölmiðlafyrirtæki eru að nota gervigreind til áróðurs. Við megum engan tíma missa. Sem ríki, þá stöndum við frammi fyrir stórum ákvörðunum um hlutverk okkar á alþjóðavettvangi“, sagði Davie. Í rannsókn sem BBC gerði á trausti til fjölmiðla mælist traust til útvarpsstöðvarinnar 78% og hefur sú tala haldist óbreytt í fjögur ár. Traust hefur hins vegar aukist á ríkisreknum fjölmiðlum í Kína og Rússlandi og hefur aukist verulega frá fyrri rannsóknum. Davie sagði að á sama tíma væri lokað fyrir útsendingar BBC í Kína, Rússlandi, Túrkmenistan og hluta Víetnams. Þá væri erfitt að halda úti þjónustu í Eþíópíu, Myanmar og Afganistan. Breskir ráðherrar hafa tekið undir þau rök margra að BBC World Service sé mjúkt vald. Fram til ársins 2014 var útvarpsstöðin eingöngu fjármögnuð af utanríkisráðuneytinu. BBC World service sendir út á 43 tungumálum og nær til 418 milljóna hlustenda í hverri viku. Fréttamenn og starfsfólk BCC starfar í 64 borgum í 54 löndum. Útsendingar útvarpsstöðvarinnar eru bæði aðgengilegar á vefnum og í smáforriti.