- What: Svana Helen Björnsdóttir withdrew her candidacy for a political position to focus on her role as the CEO of Reykjalundur.
- Impact: This decision affects the political landscape in Seltjarnarnes.
Ekkert verður af því að Svana Helen Björnsdóttir bæjarfulltrúi taki þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi sem hún hlaut í prófkjöri um þarsíðustu helgi. Hún ætlar þess í stað að helga sig starfi forstjóra Reykjalundar sem hún var nýlega fastráðin. Hún hafði áður gegnt starfinu tímabundið samhliða því að vera stjórnarformaður Reykjalundar. Svana Helen tilkynnti um ákvörðun sína í morgun. „Mér var nýlega boðið mjög krefjandi og spennandi starf, rétt áður en prófkjörið hófst, sem forstjóri Reykjalundar. Ég tel að það sé farsælast að ég dragi mig úr öllu pólitísku starfi samhliða því stóra verkefni. Ég hyggst þó sitja út þetta kjörtímabil rétt eins og ég var kjörin til. Ég hef upplýst bæjarstjóra Seltjarnarness og formann kjörnefndar Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi um þessa ákvörðun mína.“