- What: An outbreak of measles has been reported in London schools, affecting at least 34 children.
- Impact: Around one-fifth of the infected children required hospitalization, and none were fully vaccinated.
Þrjátíu og fjögur börn, hið minnsta, hafa greinst með mislinga í nokkrum skólum í London síðustu vikur. Breska ríkisútvarpið, BBC , hefur eftir lækni að leggja hafi þurft um fimmtung barnanna inn á spítala. Ekkert barnanna sem smituðust var að fullu bólusett. Alls voru 96 tilvik mislinga greind á Englandi í janúar. Smitum þar hefur fjölgað líkt og víðar um heim. Aukningin er rakin til þess að færri eru bólusettir. Fram kemur á Vísindavef Háskóla Íslands að mislingar séu óþægilegasti barnasjúkdómurinn og sá hættulagasti af þeim sem valda útbrotum þar sem þeir geti leitt til alvarlegra fylgikvilla. Mynd úr safni. Mislingaútbrot á baki barns.Shutterstock / Phichet Chaiyabin