Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frumvarp um afturköllun verndar samþykkt

  • What: The Icelandic parliament unanimously approved a bill allowing the government to revoke international protection for foreigners who commit serious or repeated crimes or pose a threat to national security.
  • Impact: The law grants authorities the power to revoke protection under certain conditions.
Read Full Article →

Frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar var samþykkt einróma á Alþingi í dag. Þingmenn allra flokka studdu málið en stjórnarandstaðan vildi þó ganga lengra. Samkvæmt lögunum fá stjórnvöld heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð afbrot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Stjórnarandstaðan lagði fram tillögu um að í stað heimildar yrði gert skylt að afturkalla vernd við ofangreind afbrot en það var fellt. Meðal annars með þeim rökum að slíkt myndi setja mikið álag á dómstólana. RÚV / Ari Páll Karlsson

Share this article