Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Clinton sakar Trump um yfirhylmingu í Epstein-málinu

  • What: Hillary Clinton accuses Donald Trump's administration of covering up information related to Jeffrey Epstein.
  • Impact: The accusation suggests potential political motivations behind the handling of the Epstein case.
Read Full Article →

Hillary Clinton, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sakar ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um yfirhylmingu í meðferð gagna um kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Clinton sagði þetta í viðtali við breska ríkissjónvarpið BBC í gær. Nafn eiginmanns hennar og fyrrum forseta, Bill Clinton, kemur margsinnis fyrir í Epstein-skjölunum. Hvorugt þeirra er grunað um eitthvað saknæmt í tengslum við Epstein, og bæði neita því að hafa vitað af kynferðisbrotum hans. Þau segja að vitnisburður þeirra ætti að vera opinber. Hún segir að verið sé að nota þau til að beina athyglinni frá Trump og tengslum hans við Epstein. „Ég vil bara sanngirni. Ég vil að allir séu meðhöndlaðir á sama hátt. Við höfum ekkert að fela. Við höfum ítrekað kallað eftir því að þessi skjöl verði öll birt. Við teljum að sólarljós sé besta sótthreinsiefnið,“ sagði Hillary. Aðspurð um það hvort Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrum Bretaprins, ætti að mæta fyrir þingnefndina til að bera vitni sagði hún að allir ættu að bera vitni sem væru beðnir um það. Hillary minnist þess ekki að hafa hitt Jeffrey Epstein en sagði að hún hefði nokkrum sinnum hitt samkverkakonu hans Ghislaine Maxwell. Bill átti í nokkrum samskiptum við Epstein en segist hafa hætt öllum samskiptum við hann fyrir tveimur áratugum. Hillary mætir fyrir þingnefndina 26. febrúar og Bill ber vitni daginn eftir, 27. febrúar.

Share this article