Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjaforseti útilokar ekki frekari vopnasendingar til Taívan

  • What: The President of the United States is considering sending more weapons to Taiwan.
  • Impact: This decision could escalate tensions between the United States and China.
Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að ákveða sig fljótlega hvort Bandaríkin sendi fleiri vopn til Taívans. Hann sagðist hafa rætt við forseta Kína, XI Jinping, símleiðis í gær sem hefði varað Trump við því að senda fleiri vopn til Tævans. XI Jinping sagði í viðtali við kínverska ríkisfjölmiðilinn að málefni Taívans væru eitt mikilvægasta málefnið í samskiptum Kína og Bandaríkjanna. Bandaríkin verði að fara varlega í frekari vopnasendingar til eyjarinnar. Stjórnvöld í Kína staðhæfa að Taívan tilheyri Kína og hafa hótað því að innlima eyjuna. Stjórnvöld í Tævan hafa eytt mörg hundruð milljörðum í að byggja upp her sinn á síðasta áratug. Bandaríkjastjórn hefur beitt taívönsk stjórnvöld þrýstingi til efla varnir sínar gegn Kína og er einn helsti hernaðarlegi bakhjarl eyjarinnar. Bandaríkjastjórn samþykkti vopnasölu til Taívans fyrir 11 milljarða bandaríkjadala í desember. Stuttu síðar hófu Kínverjar heræfingar til að kalla eftir lokun helstu hafna Taívans. Á nýafstaðinni öryggisráðstefnu í Munchen varaði kínverski utanríkisráðherrann Wang Yi, Bandaríkjastjórn við ráðabruggi með Taívan og sagði að það gæti leitt til ágreinings við Kína. Forseti Taívans, Lai Ching-te, vill að ríkisstjórnin leggi til 40 milljarða aukaútgjöld til varnarmála næstu átta árin. Frumvarpið hefur ekki enn fengist samþykkt á þinginu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir forsetans.

Share this article