- What: The government of Gabon has banned social media platforms indefinitely.
- Impact: The ban is intended to combat the spread of misinformation and hate speech, which the government claims undermines national security and social cohesion.
Samfélagsmiðlar verða umsvifalaust bannaðir í Vestur-Afríkuríkinu Gabon þar til annað verður ákveðið. Ekki var tíundað til hvaða miðla bannið tekur, að því er segir í umfjöllun AFP-fréttaveitunnar. Talsmaður þeirrar stofnunar sem sinnir öllum fjarskiptamálum sagði í sjónvarpsávarpi færslur á miðlunum kynda undir átökum og sundrungu samfélagsins. Fáein ríki hafa sett eða boðað aldurstakmark á notkun samfélagsmiðla, einkum að sögn til að vernda börn og ungmenni fyrir óæskilegum áhrifum þeirra. „Óviðeigandi, niðurlægjandi og hatursfullt efnið grefur undan mannlegri reisn, siðavendni, virðingu, samheldni og stöðuleika innan stofnana lýðveldisins og ógnar þannig þjóðaröryggi,“ sagði talsmaðurinn Jean-Claude Mendome. Hann nefndi jafnframt útbreiðslu falskra upplýsinga, einelti og óleyfilega birtingu persónuupplýsinga sem ástæðu bannsins. Mendome áréttaði að málfrelsi og rétturinn til gagnrýni og athugasemda væru grundvallarréttindi íbúa Gabon. Ríkisstjórn forsetans Brice Oligui Nguema stendur frammi fyrir talsverðri ólgu tæpu ári eftir að hún komst til valda. Kennarar lögðu niður störf í desember til að krefjast hærri launa og betri vinnuaðstöðu. Fleiri opinberir starfsmenn hóta að feta í fótspor þeirra, meðal annars heilbrigðisstarfsfólk, háskólakennarar og starfsfólk ríkisfréttamiðilsins.