Norska krónprinsessan Mette-Marit segist í skriflegri yfirlýsingu mjög brugðið vegna frásagna fórnarlamba bandaríska kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem hún biðst afsökunar. Mette-Marit kveðst hvort tveggja sem kona og móðir styðja fórnarlömbin heils hugar og segir mikilvægt að raddir þeirra heyrist. Hún ítrekar hve miður sín hún fyrir að hafa ekki í tíma áttað sig á hvaða mann Epstein hefði að geyma. Yfirlýsingin birtist eftir að Marina Lacerda, ein þeirra sem allra fyrst ásökuðu Epstein um kynferðisbrot, gagnrýndi Mette-Marit harðlega í samtalsþætti á NRK. Epstein-skjölin sýna að krónprinsessan átti um árabil í miklum samskiptum við kynferðisbrotamanninn og þeim virðist hafa verið vel til vina. Í tölvupóstum má meðal annars sjá Mette-Marit segja Epstein vera heillandi auk þess sem hún dvaldi fjóra daga á setri hans á Flórída. Lacerda sagði í viðtalinu að Mette-Marit þyrfti að vera hreinskilin og taka ábyrgð á samskiptum við manninn sem stundaði mansal með börn og misnotaði þau. Samkvæmt upplýsingum norsku hirðarinnar sleit Mette-Marit öllum tengslum við Epstein árið 2014. Mette-Marit hefur nokkrum sinnum beðist afsökunar á sambandinu, seinast snemma í febrúar.