Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lokað milli Víkur og Lómagnúps vegna norðanhríðar

  • What: The Ring Road in Iceland is closed between Vík and Lómagnúpur due to a blizzard.
  • Impact: Travel is disrupted in the affected area.
Read Full Article →

Hringvegurinn er lokaður frá Vík að Núpsvötnum vegna norðanhríðar og verður svo hið minnsta til hádegis. Hringvegurinn er á óvissustigi frá Steinum að Jökulsárlóni fram að hádegi og gæti lokast með skömmum fyrirvara. Höfuðborgin var auð af snjó þegar fólk vaknaði í morgun og verður það eitthvað áfram, þó gæti komið minniháttar fjúk þegar líður á morguninn, segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir voru gefnar út á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hríðarveður. Þessir landshlutar hafa fengið ágætis snjókomu, segir Óli Þór. Þó að snjórinn hafi ekki losað fólk við svifrykið sem hefur verið síðustu daga gæti það hafa blásið á brott því strekkingsvindur hefur verið á höfuðborgarsvæðinu. Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld: Hægt minnkandi austan og norðaustanátt í dag og dregur smám saman úr ofankomu, átta til fimmtán seinnnipartinn. Norðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu og smáél við norðurströndina, en norðan átta til þrettán og snjókoma fyrir norðan í kvöld. Frost að tíu stigum en sums staðar frostlaust allra syðst. Norðlæg átt fimm til þrettán á morgun. Él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestantil. Minnkandi frost og líklega sums staðar frostlaust við ströndina. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um færð.

Share this article