- What: A rescue team assisted four German tourists in Mælifellsdal, Iceland after their vehicle became stranded.
- Impact: The tourists were cold but unharmed after a five-kilometer walk in snowy conditions to find cell service and call for help.
Félagar í Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð og Skagfirðingasveit á Sauðárkróki komu fjórum þýskum ferðalöngum til hjálpar í Mælifellsdal í gærkvöld. Fólkið var á Duster-bíl og virðist hafa ætlað suður Kjöl á ferðalagi sínu. Björgunarleiðangurinn gekk vel en fólkið þurfti að hafa fyrir því að kalla eftir aðstoð. Ekkert farsímasamband er í Mælifellsdal innarlega í Skagafirði. Því þurfti hluti hópsins að ganga fimm kílómetra leið í snjó og allt að átján stiga frosti til að komast í símasamband. Þegar fólkið náði að hringja eftir aðstoð var því ráðlagt að ganga aftur í bílinn svo það kæmist í skjól. Útkallið barst um kvöldmatarleytið og um tveimur tímum síðar var búið að bjarga fólkinu, losa bílinn og koma því aftur af stað. Ferðalangar voru kaldir en brosmildir þegar þetta var afstaðið, samkvæmt upplýsingum frá Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð. Fólkið þykir hafa komist furðu langt þar sem dalurinn er alla jafna á kafi í snjó á þessum árstíma. Aðstæðum þarna er lýst sem svo að vegurinn sé vart nema sveitavegur yfir sumartímann og henti alls ekki til ferðalaga að vetri, í það minnsta á léttum fólksbílum.