Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Upplifa það sem „verstu hugmynd í heimi“ að segja frá kynferðisofbeldi

  • What: More people are seeking help from support organizations after media coverage of sexual violence cases in Iceland.
  • Impact: Support organizations like Stígamót report an increase in individuals seeking assistance, particularly men who have experienced sexual violence.
Read Full Article →

Fleiri leita til hjálparsamtaka eftir að umfjöllun, sem er hliðholl brotaþolum, birtist í fjölmiðlum, segir Hjálmar Gunnar Sigmarsson, hjá Stígamótum. Samtökin bjóða upp á ráðgjöf fyrir brotaþola kynferðisofbeldis. „Þetta eru þung skref fyrir alla brotaþola, af öllum kynjum,“ segir Hjálmar. Kveikur fjallaði í gærkvöld áfram um sögu manna sem sendir voru í fóstur á Bakkakot sem ungir drengir þar sem þeir segjast hafa verið beittir grófu ofbeldi og í sumum tilfellum kynferðisofbeldi. Hjálmar segir að undanfarin ár hafi fleiri karlar leitað til samtakanna til þess að fá aðstoð eftir að hafa verið beittir kynferðislegu ofbeldi. „Margir koma til okkar og segja: Í mörg ár þá leið mér þannig að það var versta hugmynd í heimi að segja frá. Þá blandast inn í þetta skömm og sektarkennd, þeir kenna sjálfum sér um,“ sagði Hjálmar í Morgunútvarpinu á Rás 2. Fleiri leita til hjálparsamtaka eftir að umfjöllun, sem er hliðholl brotaþolum, birtist í fjölmiðlum, segir fulltrúi hjá Stígamótum. Margir karlar sem leita til samtakanna lýsa erfiðleikum við að tjá reynslu sína. Margir sem leiti til samtakanna lýsi erfiðleikum við að tjá reynslu sína. Hann segir margar ranghugmyndir ríkjandi í samfélaginu um brotaþola og sérstaklega meðal karlmanna. Ein þeirra er að karlar geti ekki orðið fyrir ofbeldi. „Ef þeir verða fyrir svona eða eru í aðstæðum þá eiga þeir að geta komið í veg fyrir það sem karlmenn og ef þeir hafa orðið fyrir þessu, sem dæmi sem strákar að þá eiga þeir ekkert að þurfa að vinna úr því,“ segir Hjálmar. „Þeir eiga að geta bara bjargað sér, þeir eiga bara að harka þetta af sér, þeir eiga ekkert að vera að væla eins og sumir bókstaflega orða það,“ segir Hjálmar.

Share this article