- What: A court has ruled to remove the trustee of the bankrupt airline Play due to a conflict of interest.
- Impact: The removal was requested by a major shareholder due to the trustee's husband owning a law firm representing Play.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs að víkja Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni úr stöðu skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Vísir greindi fyrst frá. Tómas Magnús Þórhallsson, eiginmaður Unnar Lilju, er eigandi á BBA/Fjeldco, sömu lögmannsstofu og lögmaður Play. Birta fór fram á það í desember að Unnur viki vegna meints vanhæfis. Birta var meðal stærsu hluthafa Play. Unnur var skipuð skiptastjóri þrotabús Play skömmu eftir að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta ásamt Arnari Þór Stefánssyni lögmanni.