Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Baðst afsökunar á að hafa kallað ráðherra fyrirbæri og ótíndan götustrák

Read Full Article →

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar til að biðjast afsökunar á orðum sem hann lét falla í ræðustól Alþingis í gærkvöldi. Heitar umræður urðu undir liðnum fundarstjórn forseta í gær vegna frumvarps félagsmálaráðherra um bætur almannatrygginga. Ráðherrann, Ragnar Þór Ingólfsson, blandaði sér í umræðuna og fóru orð hans fyrir brjóstið á Jóni sem svaraði fullum hálsi. “Þetta er eins og ótíndur götustrákur er hér á ferð en ekki ráðherra í ríkisstjórn Íslands,” sagði Jón og spurði síðar í ræðunni: “Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega inn á þing?” Jón sá að sér eftir góðan nætursvefn og baðst afsökunar á orðum sínum þegar þingfundur hófst klukkan 15. Viðurkenndi Jón að honum hafi orðið of heitt í hamsi og að þessi orð hans hafi verið óboðleg. “Ég vil biðjast velvirðingar á því gagnvart þinginu og gagnvart hæstvirtum ráðherra sem ég beindi orðum mínum til.”

Share this article