Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Zuckerberg ber vitni í máli um skaðasemi samfélagsmiðla

  • What: Mark Zuckerberg testified in a lawsuit alleging that social media platforms like Instagram and YouTube are designed to be addictive to children.
  • Impact: The lawsuit claims that the platforms have contributed to the plaintiff's depression and suicidal thoughts.
Read Full Article →

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og forstjóri Meta, ber vitni fyrir dómi í Bandaríkjunum í dag í máli gegn samfélagsmiðli hans, Instagram. Ung kona, sem byrjaði sem barn að nota Instagram og Youtube, segir fyrirtækin sem eiga þessa samfélagsmiðla hafa hannað þá til að gera þá meira ávanabindnadi fyrir börn til að auka hagnað. Byrjaði að nota Youtube 6 ára og Instagram 9 ára Konan höfðaði málsókn gegn Meta, móðurfyrirtæki Instagram, og Google, móðurfyrirtæki Youtube. Hún heldur því fram að notkun samfélagsmiðlana sem barn hafi ýtt undir fíkn í tæknina, hún hafi þróað með sér þunglyndi og glímt við sjálfsvígshugsanir. Konan byrjaði að nota Youtube þegar hún var sex ára og Instagram þegar hún var níu ára, samkvæmt upplýsingum frá lögmanni hennar. Hún notaði Instagram í allt að 16 klukkustundir á dag, þrátt fyrir tilraunir móður hennar til að minnka notkunina. Konan segir notkun hennar á samfélagsmiðlunum hafa leitt til þess að hún hafi þróað með sér kvíða, líkamsskynjunarröskun og sjálfsvígshugsanir. Auk þess hafi hún verið lögð í einelti á Instagram og beitt kynlífskúgun. Upphaflega höfðaði hún málsókn gegn fjórum fyrirtækjum, Meta, Google, ByteDance sem á TikTok og Snap Inc. sem á Snapchat. TikTok og Snapchat hafi hins vegar samið um bætur áður en réttarhöldin byrjuðu. Zuckerberg hefur áður borið vitni um samfélagsmiðlafíkn fyrir Bandaríkjaþingi en þetta er í fyrsta sinn sem hann ber vitni fyrir dómstólum. Réttarhöldin eru í Los Angeles í Kaliforníu. Bæði fyrirtæki neita sök. Búist er við því að Zuckerberg verði spurður út í innri rannsóknir Meta á áhrifum samfélagsmiðla þeirra. Talsmaður Meta segir fyrirtækið vera „algerlega ósammála“ ásökununum í málsókninni og að það sé fullvisst um að sönnunargögnin sýni fram á langvarandi skuldbindingu fyrirtækisins til að styðja við ungt fólk. Lögfræðingur fyrirtækisins segir flóknu fjölskydlulífi konunnar frekar um að kenna en samfélagsmiðlum. Komist kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Meta beri ábyrgð gæti fyrirtækið þurft að greiða skaðabætur. Dómurinn gæti grafið undan lagalegri vörn stórra tæknifyrirtækja gegn kröfum notenda um skaða.

Share this article