Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem verjandi Þorsteins sendi fjölmiðlum í dag. Honum var gefið að sök að hafa áreitt unga konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. „Að vera sakaður um refsiverða háttsemi að ósekju er nokkuð sem á ekki að viðgangast en ég er þakklátur því að réttlætið náði fram að ganga,“ segir í yfirlýsingu Þorsteins. Þorsteinn lét af störfum sem forstjóri Deloitte á Íslandi þegar ákæran var gefin út í janúar. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þá sagði að hann ætlaði að láta af forstjórastarfinu á meðan málið yrði leitt til lykta. Hann neitaði ásökunum og sagðist hafa kært viðkomandi fyrir rangar sakagiftir.