- What: Andrew Mountbatten Windsor was arrested on suspicion of misconduct in public office.
- Impact: The arrest is related to allegations that he shared sensitive information with convicted sex offender Jeffrey Epstein.
Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, var handtekinn í morgun á heimili sínu í Sandringham í Norfolk. Hann er grunaður um misferli í opinberu starfi. Óeinkennisklæddir lögreglumenn á ómerktum lögreglubílum komu að heimili Mountbatten Windsor í morgun klukkan átta og handtóku hann. Hann var færður í varðhald hjá Thames Valley-lögreglunni þar sem hann er enn. Lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að karlmaður á sjötugsaldri hefði verið handtekinn vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Mountbatten Windsor var ekki nefndur á nafn en fjölmiðlar greindu frá því á tíunda tímanum að þetta hefði verið hann. Lundúnalögreglan hafði verið að skoða ásakanir um að Mountbatten Windsor hefði deilt viðkvæmum upplýsingum með kynferðisbrotamanninum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein, þegar hann var viðskiptaerindreki Bretlands. Thames Valley-lögreglan lét að því liggja í yfirlýsingu sinni að handtakan tengdist þessu. Þar kom einnig fram að rannsókn á málinu væri formlega hafin. Lundúnalögreglan fór í þessa skoðun eftir birtingu skjala og tölvupóstssamskipta í tengslum við mál Jeffreys Epsteins. Mountbatten Windsor var sérlegur viðskiptaerindreki Bretlands frá 2001 til 2011. Í því hlutverki ferðaðist hann víða og hafði aðgang að háttsettum tengiliðum bresku ríkisstjórnarinnar í viðskiptalífi um allan heim. Viðskiptaerindreki fer með trúnaðarskyldu varðandi viðkvæmar upplýsingar sem hann fær í gegnum störf sín. Meðal þess sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna gerði opinbert nýlega í tengslum við mál Epsteins eru gögn sem benda til þess að Mountbatten Windsor hafi sent viðkvæm skjöl tengd stjórnvöldum í Bretlandi og viðskiptaupplýsingar til Epsteins. Árið 2010 sendi hann Epstein upplýsingar úr ferðum sem hann fór til Víetnam, Singapore og Kína. Einnig virðist hann hafa áframsent trúnaðargögn til Epsteins með upplýsingum um fjárfestingatækifæri í gull- og úraníumvinnslu í Afganistan. Mountbatten Windsor hefur neitað að hafa gert nokkuð rangt í samskiptum við Epstein og hafnað öllum ásökunum um að hann hafi notað tíma sinn sem viðskiptaerindreki til að vinna að eigin hagsmunum. Lögreglan getur haft Mountbatten Windsor í haldi í allt að 96 tíma. Til þess að halda honum svo lengi þarf lögreglan að fá framlengingu frá yfirlögregluþjónum og dómstólum. Í flestum tilfellum eru grunaðir einstaklingar í haldi í 12 til 24 tíma. Síðan eru þeir annað hvort ákærðir eða látnir lausir. Hámarksrefsing fyrir misferli í opinberu starfi er lífstíðarfangelsi.