Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sinueldur við Galtarlæk í Hvalfirði

  • What: A brush fire was reported near Galtarlækur in Hvalfjörður.
  • Impact: The extent of the fire is currently unknown, but the fire department is on the scene.
Read Full Article →

Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar barst tilkynning rétt fyrir klukkan fimm um sinueld við Galtarlæk í Hvalfirði. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar, slökkviliðsstjóra, voru þrír bílar sendir á svæðið. Hann segir lítið vitað um umfang eldsins og upptök að svo stöddu, slökkviliðsmenn séu rétt komnir á staðinn. Fyrstu fréttir gefi til kynna að eldurinn sé ekki umfangsmikill. Þó sé erfitt að segja til um það þar sem bæði sé þurrt og vindasamt á svæðinu. Sjónarvottur sem hafði samband við fréttstofu sagðist telja að eldurinn hafi kviknað út frá sígarettu sem kastað var út úr bíl. Hann brýnir fyrir fólki að sleppa slíku, þar sem gróður er mjög þurr á svæðinu. Fréttin verður uppfærð.

Share this article