Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Karlmaður lét lífið í árás Úkraínuhers á Sevastopol

  • What: A man was killed in a Ukrainian attack on Sevastopol, Crimea.
  • Impact: The attack targeted the port city where the Russian Black Sea Fleet is based.
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Karl­mað­ur lét lífið í árás Úkra­ínu­hers á Sev­a­s­to­pol Markús Þ. Þórhallsson Karlmaður lét lífið í loftárás Úkraínuhers á hafnarborgina Sevastopol á Krímskaga sem Rússar innlimuðu árið 2014. Árásardróni á heræfingu í Póllandi. EPA / PAWEL SUPERNAK Úkraínumenn hafa gert þungar árásir á Sevastopol frá upphafi innrásar, þar sem Svartahafsfloti Rússlands hefur aðsetur. Borgarstjórinn Mikhail Razvozhayev segir í færslu á Telegram flotann og loftvarnarkerfi borgarinnar hafa tortímt minnst sextán úkraínskum árásardrónum í kvöld. Fyrir 59 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Al­þjóð­leg hjálp­ar­sam­tök heita brýnum lífs­nauð­synj­um innan mán­að­ar Hjálparsamtök ætla að senda skip og flugvélar hlaðin hjálpargögnum til Kúbu, matvæli, lyf og lækningavörur. Búist er við að hjálpin berist 21. mars. Bann Bandaríkjaforseta við flutningi olíu til Kúbu hefur bætt gráu ofan á svart í efnahagsmálum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Ákærð­ir fyrir dráp hægri-öfga­manns í Frakk­landi Alls hafa þrír verið ákærðir í tengslum við drápið á Quentin Deranque í síðustu viku. Þeirra á meðal er Jacques-Elie Favrot, aðstoðarmaður þingmanns í Frakklandi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Banda­ríkja­for­seti hótar hörku liggi ekki samn­ing­ur á borð­inu innan tíu daga Bandaríkjaforseti segir eitthvað slæmt munu henda Írani komist þeir ekki að haldbæru samkomulagi um kjarnorkuáætlun sína innan tíu daga. Íranir segjast hvorki vilja auka á spennu né fara í stríð. Atlögum verði svarað af fullri hörku. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Slökkvi­lið kallað út vegna efnaleka í kennslu­stofu Markús Þ. Þórhallsson Einn af dælubílum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Háskólanum í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í kvöld vegna óhapps í efnafræðistofu, líkt og varðstjóri orðaði það í samtali við fréttastofu. Hann segir að sá sem í stofunni var hafi komið sér þaðan út og að slökkviliðsmenn hafi lofthreinsað stofuna. Enginn var í hættu að sögn varðstjórans. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Færa bíla­stæð­in við Skóga­foss til að vernda frið­lýst svæði Búið er að loka bílastæðum sem voru við árbakkann neðan við Skógafoss. Markmiðið er að varðveita svæðið, sem er friðlýst. Ný bílastæði eru um hálfum kílómetra frá fossinum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Nauð­syn­legt að setja skýran lag­aramma um áfanga­heim­ili Verkefnastjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir núverandi fyrirkomulag áfangaheimila óviðunandi. Tímabært sé að hafa eftirlit með heimilunum og skýra lagaumgjörð. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Samfélag Sig­urð­ur Reynir og Grímur hlutu heið­urs­verð­laun Ásu­sjóðs Ásusjóður var stofnaður 1968 og veitir árlega viðurkenningu til þeirra sem hafa skarað fram úr á sviði vísinda og nýsköpunar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Réðu nið­ur­lög­um sinu­brun­ans við Galt­ar­læk á hálf­tíma Varaslökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar segir sinueldinn við Galtarlæk hafa reynst ósköp lítinn og að auðvelt hafi verið að slökkva í honum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Enn eitt ól­ymp­íu­met­ið í skauta­hlaupi og gull­mark tryggði gullið í ís­hokkí Fjórir fljótustu menn voru undir ólympíumetinu í 1500 metra skautahlaupi karla á Ólympíueikunum í dag. Bandaríkin urðu ólympíumeistarar kvenna í íshokkí í kvöld eftir sigur í framlengdum úrslitaleik gegn Kanada. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Til­kynn­ing um skot­árás reynd­ist ekki á rökum reist Guðmundur Atli Hlynsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerð á Sléttuvegi í dag vegna tilkynningar um skotárás. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að tilkynningin hafi ekki verið á rökum reist. Þá sé hvorki sá sem tilkynnti um „að skotið hefði verið á sig“ né sá sem átti að hafa skotið í varðhaldi lögreglu. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fimm atriði sem þú ættir að vita um hand­töku Andr­ews Hvernig tengjast Epstein-skjölin handtöku Andrews Mountbatten-Windsor? Hversu langt aftur þarf að leita til að finna svipað atvik, þar sem háttsettur meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar var handtekinn? Hér eru fimm áhugaverð atriði um handtökuna. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvar eru flokk­arn­ir að bjóða fram? Miðflokkurinn stefnir á að bjóða fram í nær helmingi fleiri sveitarfélögum í kosningunum í vor en fyrir 4 árum og það sama má segja um Viðreisn. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram í 36 sveitarfélögum og Píratar í einu, en þeir buðu fram í 6 síðast. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Hver sem er getur rekið áfanga­heim­ili hvar sem er Hver sem er getur rekið áfangaheimili hvar sem er og ekkert eftirlit er með starfseminni. Dæmi eru um að fólk hafi dvalið á áfangaheimili í átta ár. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vill gera sömu kröfur og til dvalarheimila. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Jón Erik um af­rek­ið: „Þegar ég sá frétt­irn­ar þá fatt­aði ég það“ Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson náði besta árangri Íslendings á Vetrarólympíuleikum í 20 ár þegar hann endaði í 25. sæti í svigi á mánudag. Jón var þó ekki meðvitaður um að hann væri að skrá sig á spjöld íslenskrar íþróttasögu. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Op­in­ber­ir starfs­menn ekki frekar veikir en aðrir Fjarvera opinberra starfsmanna er sögð tvöfalt algengari en á almennum markaði í nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Bæjarstjóri Ölfuss segir opinbera starfsmenn ekki meira veika en aðra. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Grind­vík­ing­ar fá að velja um hvar þeir kjósa Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um sveitarstjórnarkosningar sem gefa Grindvíkingum sem áttu lögheimili í Grindavík fyrir rýmingu 10. nóvember 2023 val um að kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þeir eiga lögheimili í. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál „Horf­urn­ar dekkri en áður“ Sífellt fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljast undir auglýstu verði og Samtök iðnaðarins greina samdrátt á byggingamarkaði. Framkvæmdastjóri þeirra segir horfurnar dekkri en áður. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vilja heim­ila smá­sölu áfeng­is í vef­versl­un­um Þingmenn Viðreisnar vilja breyta áfengislögum, setja skýrari lagaramma utan um vefverslun með áfengi og eyða óvissu um lögmæti innlendra vefverslana. Frumvarp þess efnis hefur verið lagt fram á Alþingi. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Sinu­eld­ur við Galt­ar­læk í Hval­firði Slökkviliði barst tilkynning um sinubruna við Galtarlæk í Hvalfjarðarsveit rétt fyrir klukkan fimm. Enn er óvíst um hversu umfangsmikill eldurinn er. Þrír bílar voru sendir á vettvang. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Boðar stefnu í mál­efn­um heim­il­is­lausra Félags- og húsnæðismálaráðherra boðar stefnu í málefnum heimilislausra og ríkið byggir húsnæði fyrir þennan hóp. Reykjavíkurborg ætlar að fjölga íbúðum fyrir heimilislausa um hundrað. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Ráðast gegn brota­járns­haug­um sem taka á móti skip­a­f­ar­þeg­um á Seyð­is­firði Á Seyðisfirði hafa stórkostlegir brotajárnshaugar verið lýti við hafnarsvæðið og blasað við skipagestum. Heilbrigðiseftirlit og Múlaþing skera upp herör gegn ruslinu sem Veðurstofan telur geta aukið eyðileggingarmátt snjóflóða og torveldað björgun. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan Fyrir hvað var Andrew Mount­batt­en Winds­or hand­tek­inn? Andrew Mountbatten Windsor var handtekinn á heimili sínu í morgun en fyrir hvað? 19. febrúar 2026 kl. 16:54MENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist 100 ára tón­skáld bað Víking Heiðar að leika á af­mæl­inu sínu György Kurtág, eitt merkasta tónskáld samtímans, fagnar 100 ára afmæli í dag. Víkingur Heiðar Ólafsson og eiginkona hans, Halla Oddný Magnúsdóttir, spila aðalhlutverk á tónleikum sem fara fram til heiðurs tónskáldinu í Mupa salnum í Budapest í kvöld. 19. febrúar 2026 kl. 16:30ERLENDAR FRÉTTIR Íran Banda­ríkja­her sagður reiðu­bú­inn til árása á Íran Spenna hefur stigmagnast í samskiptum Bandaríkjanna og Írans. Bandaríkjaforseti hefur ekki fyrirskipað árás en bandaríkski herinn hefur aukið mjög herafla sinn á Persaflóa og Arabíuhafi. 19. febrúar 2026 kl. 15:58MENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Skít­hrædd: Þarna er hún stúlk­an Skíthrædd er plata eftir Unni Elísabetu. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2. „Heilt á litið er platan sterk, það er kynngimagn í henni og kraftur sem hefur vafalaust losnað í sköpunarferlinu.“ 19. febrúar 2026 kl. 15:49INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Rósa Björk býður sig fram til for­manns VG Rósa Björk Brynjólfsdóttir býður sig fram til formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Formannskjör fer fram á landsfundi flokksins í byrjun mars. 19. febrúar 2026 kl. 15:43INNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing Stytta opn­un­ar­tím­ann eftir að krakk­ar fóru fram á að komast í kvölds­und Börn í sjöunda bekk á Húsavík fengu á dögunum reglum breytt í sundlaug bæjarins, svo þau gætu verið í lauginni án fylgdarmanns eftir átta á kvöldin. Það verður þó skammur fögnuður því opnunartíma laugarinnar verður breytt um mánaðamótin. 19. febrúar 2026 kl. 15:16INNLENDAR FRÉTTIR Landsréttur Tíu ára fang­els­is­dóm­ur í Kiðja­bergs­mál­inu Litháískur maður hefur verið sakfelldur fyrir meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða samlanda hans í hinu svokallaða Kiðjabergsmáli. 19. febrúar 2026 kl. 15:09INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar For­stjóri Deloitte sýkn­að­ur af ákæru fyrir kyn­ferð­is­brot Þorsteinn Pétur Guðjónsson hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Hann lét af störfum sem forstjóri Deloitte þegar ákæran var gefin út. 19. febrúar 2026 kl. 14:59INNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Skipu­lags­stofn­un lögð niður Magnús Geir Eyjólfsson Skipulagsstofnun verður lögð niður og verkef

Share this article