- What: A discussion in the Icelandic parliament focused on the increasing threat of organized crime in Iceland.
- Impact: The discussion highlighted the need for a stronger response to prevent the problem from escalating.
Innlent | mbl | 20.2.2026 | 13:10 „Bregðist við eða vandinn mun vaxa“ Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/samsett mynd/Karítas Sérstök umræða var í þinginu í gær um skipulagða brotastarfsemi en Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins var málshefjandi umræðunnar og tók Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra þátt í umræðunum. Karl Gauti opnaði umræðuna og fór yfir það að allt frá árinu 2008 hafi varnaðarorð birts í skýrslum ríkislögreglustjóra um hinn nýja veruleika þar sem skipulögðum brotahópum hefur vaxið ásmegin. „Alls staðar, frú forseti, má finna þessi sömu eða svipuð viðvörunarorð: Bregðist við eða vandinn mun vaxa.“ Frétt af mbl.is Veruleg fjölgun í íslenskum málum hjá Eurojust Hann benti á að strax árið árið 2019 hafi mat lögreglu vegna starfsemi skipulagðra glæpahópa hér á landi verið flokkuð á áhættustigi „Gífurleg áhætta.“ „Það er hæsta stig áhættu í greiningu lögreglu. Í sömu skýrslu er geta lögreglunnar til að takast á við skipulagða glæpastarfsemi metin mjög lítil. Og enn fjölgar þessum hópum,“ sagði Karl Gauti. Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðlfokksins var málshefjandi í sérstakri um ræðu um skipulagða brotastarfsemi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þurfi að svipta samtökin gróðanum Þorbjörg Sigríður kvaðst hjartanlega sammála orðum Karls Gauta um að bregðast þurfi við eða vandinn muni vaxa. „Ég hef verið í þessu verkefni, að bregðast við, ráðast að, þrengja að skipulögðum brotahópum í heilt ár. Nýjasta greiningarskýrsla ríkislögreglustjóra frá október 2025 er einmitt hryggjarstykkið í nýrri stefnu stjórnvalda og aðgerðum stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi sem kynnt var í upphafi mánaðar,“ sagði hún. Frétt af mbl.is Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Markmiðið með hinni nýju stefnu sem kallast Öruggara Íslands sé skýrt: „Að stöðva þessa brotahópa, að stöðva frekari vöxt þeirra, brjóta niður innviði þeirra þannig að þeir missi slagkraftinn og viðnámsþróttinn til að halda úti starfsemi sinni hér á landi. Er þetta einfalt verkefni? Nei. Þess vegna þurfum við að vera fókuseruð og sækja að þeim úr öllum áttum.“ Hún sagði umfangsmikinn aðgerðapakka í smíðum í dómsmálaráðuneytinu sem stendur, byggt á stefnunni. „Það er mikilvægt að halda því til haga að skipulögð brotastarfsemi er hagnaðardrifin. Þess vegna er ekki bara leiðin að fara að þyngja refsingar heldur horfa á hagnaðinn með því að svipta brotahópa ólögmætum ágóða. Þess vegna lagði ég fram frumvarp í haust með víðtækum breytingum til að efla getu stjórnvalda til að fara í peningana og endurheimta ágóðann. Það frumvarp varð að lögum nú um áramót.“ Til standi að meta hvort herða þurfi enn frekar ólina og skoða heimildir til upptöku verðmæta í auknari mæli. Frétt af mbl.is Ný stefna gegn skipulagðri brotastarfsemi Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins tók undir með ráðherranum og hvatti hana til dáða: „Það sem skiptir mestu er að brjóta upp rekstrargrundvöll brotahópanna. Við sjáum hversu langt þessir hópar eru komnir í t.d. peningaþvætti og öðru sem getur falið sporin og endurfjárfest í ólöglegri starfsemi. Ef við tökum gróðann af glæpahópunum þá veikjum við áhrif þeirra,“ sagði hún. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eyþór Aðgerðir frekar en skýrslur og stefnur Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gaf lítið fyrir svör ráðherra um að verið væri að skoða aðgerir og búa til aðgerðapakka. „Lögreglan hefur það alveg á hreinu hver þurfi að vera næstu skref. Það þarf ekkert að fara í einhverja frekari skýrslugjöf eða einhverjar safnanir út úr því, það liggur alveg fyrir.“ Frétt af mbl.is Telur að hryðjuverkamenn hafi sótt um vernd Þá fann hann að því að Þorbjörg Sigríður hefði ítrekað fullyrt í þingsal að fjölgað hefði um 50 stöðugildi hjá lögreglunni á síðasta ári: „[Hún] var ekki alveg viss um hvar þessi störf væru, hjá hvaða lögregluembættum, hversu mörg hefðu raungerst. Innan lögreglunnar heyrast þær raddir að það hafi ekki raungerst af því að það hafi ekki verið gert ráð fyrir rekstrarkostnaðinum sem þessu fylgdi,“ sagði hann. Jón Gunnarsson þingmaður sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Árni Sæberg Ekki hafi staðið á aðgerðum Dómsmálaráðuneytisins í tíð ráðherra Sjálfstæðisflokksins þar. „Við fjölguðum um 70–80 stöður, raunverulega. Við kynntum á hvaða embætti þær fóru. Við kynntum með stórri auglýsingu hvaða embætti voru að auglýsa eftir mönnum í þessi störf. Við komum á samkomulagi milli allra lögreglustjóra í landinu um að samnýta mannskap. Tímamótasamkomulag. Við settum fulltrúa hjá Eurojust. Við margfölduðum í fjölda teyma sem eru að vinna að rannsókn og saksókn í skipulagðri brotastarfsemi,“ sagði hann. Svaraði skoti ráðherra Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins gerði athugasemd við skot Þorbjargar Sigríðar á Miðflokkinn vegna þess að hluti þingflokksins hefði setið hjá við atkvæðagreiðslu um frumvarp hennar er laut að skipulagðri brotastarfsemi. „Miðflokkurinn, eins og þessi umræða ber vitni um, er mjög áfram um að það sé tekið á þessum málum. Það kunna hins vegar að koma hingað inn mál á þinginu sem Miðflokkurinn hefur stutt algerlega að efni til. En vegna einstakra ákvæða sem menn telja að hafi ekki verið fullrædd eða fullútfærð þá kjósa menn að sitja hjá í sumum málum. Það þýðir ekki að menn styðji ekki málið,“ sagði hún. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins tók því ekki þegjandi að ráðherra vændi Miðflokkinn um að standa ekki gegn skipulagðri brotastarfsemi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Spurði um menn tengda hryðjuverkasamtökum Fleiri tóku til máls og flestir hvöttu ráðherrann til dáða í málaflokknum. Undir lok umræðna gerði Karl Gauti þó athugasemd við að ráðherrann hefði ekki svarað öllum spurningum hans. „Fyrir tveimur árum síðan var manni sem var talinn virkur meðlimur í hryðjuverkasamtökum vísað úr landi. Ég spurði hæstvirtan ráðherra að því hvort hér gæti verið að finna fleiri slíka menn hér á landi sem hafa tengsl við hryðjuverkasamtök. Hvaða úrræði hafa stjórnvöld til að staðsetja þessa menn og senda úr landi? Og til hvaða ráðstafana hafa stjórnvöld gripið til að koma í veg fyrir að slíkir aðilar komist inn í landið, sem er náttúrlega grundvallaratriði,“ spurði hann. Frétt af mbl.is Liðsmaður Ríkis Íslams handtekinn á Akureyri Þá fagnaði hann sérstaklega frumvarpi um afturköllun alþjóðlegrar verndar sem samþykkt var fyrir skemmstu. „En þannig stendur á að unnt er að fá úr því skorið strax hversu vel þau lög virka og það mun sjást á því hversu fljótt maðurinn, sem hafði í hótunum við vararíkissaksóknara og varð uppvís að fjölmörgum öðrum brotum, verður sendur úr landi. Það mun koma í ljós. Og maðurinn sem hékk hér á þingpöllunum og vanvirti háttvirt Alþingi, hversu fljótt verður hann sendur úr landi,“ sagði Karl Gauti hvössum tón. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kveðst ætla að ráðast að skipulagðri brotastarfsemi úr öllum áttum. mbl.is/Karítas Ráðið í 40 af 50 auglýstum störfum Þorbjörg Sigríður var síðust í pontu og vék orðum sínum að spurningu Karls Gauta um menn með tengsl við hryðjuverkastarfsemi sem hafa komið hingað til lands, án þess þó að svara henni beint. „Það hefur gerst hér á landi eins og annars staðar, því miður. Forsenda árangurs í þeim efnum var þá og er enn þá alþjóðleg samskipti, rannsóknir og eftirlit. Þetta er auðvitað viðvarandi ógn hjá flestum ríkjum, öllum ríkjum því miður vil ég segja. Mönnum hefur verið vísað úr landi og við höfum verkfæri til að staðsetja menn, m.a. á grundvelli lögreglulaga um afbrotavarnir í þágu öryggis ríkisins og til að koma í veg fyrir komu þessara aðila þá byggja ráðstafanir á lagaheimildum sem við eigum nokkrar. “ Frétt af mbl.is Ofbeldisverk barna kalli mögulega á breytingar Rakti hún að lokum það sem verið hefur gert áður en hún þakkaði fyrir umræðuna. „Ég nefni það sem þegar hefur verið gert sem er lagasetning um farþegalista, lagasetning um endurheimt ávinnings, nýráðningar í 40 störf til lögreglu af þessum 50 sem auglýst hafa verið. Þau eru varanleg en ekki tímabundin eins og stundum hefur verið þannig að þessi fjölgun hefur komið til framkvæmda. Ég þakka fyrri stjórnvöldum fyrir það sem vel er gert og tala það ekki niður.“ Einn nýliði í íslenska landsliðinu Guðlaugu lokað að beiðni Veitna „Bregðist við eða vandinn mun vaxa“ Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Hættir sem bæjarstjóri Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Piparúða beitt gegn ungum dreng Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Einn nýliði í íslenska landsliðinu Guðlaugu lokað að beiðni Veitna „Bregðist við eða vandinn mun vaxa“ Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Hættir sem bæjarstjóri Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Húsleit lögreglu heldur áfram í Royal Lodge „Það var bara allt á f