Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Metfjöldi í Hlíðarfjalli: Lögregla þurfti að stýra umferð

Read Full Article →

Metfjöldi er í Hlíðarfjalli í dag og hefur lögregla þurft að loka fyrir umferð vegna ásóknar. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins segir vetrarfrí grunnskólanema um allt land lykilástæðu fyrir þessum mikla fjölda. Bærinn sé stútfullur af fjölskyldum sem ætli að nýta sér fríið til að skella sér á skíði. Er brjálað að gera í fjallinu? „Það er bara stappað, við getum ekki tekið við fleirum eins og staðan er núna, fólk verður að bíða þangað til það fer að hægjast, kannski koma aftur um tvöleytið og ná að skíða til fimm.“ Og eru bara raðir lengst niður í bæ? „Já það voru raðir alveg niður að Hálöndum og neðar, þannig að lögreglan ákvað að loka fyrir umferð á meðan staðan væri svona.“ Hvað tekur fjallið marga? „Flöskuhálsinn er nú kannski ekki brekkurnar, flöskuhálsinn er frekar bílastæðin, þegar þú ert kominn upp á efra svæðið þá taka brekkurnar alveg við 2000 manns á klukkutímann.“ Þannig að það eru bílastæðin sem þið þurfið í rauninni að loka en ekki fjallið? „Já, já, í rauninni eru brjálaðar raðir í Fjarkann til dæmis en ef það er góð dreifing í fjallinu þá taka brekkurnar alveg vel við sko.“ Og er gott færi? „Já, það er stilla úti, sól, heiðskírt og gæti ekki verið betra veður til að skíða.“ Búist þið við öðru eins næstu daga? „Já, ég held að öll næsta vika verði rosalega vel setin. Á laugardögum og sunnudögum erum við með opið frá 10-17 en á virkum dögum erum við með opið frá 10-19 þannig að það ættu allir að komast í fjallið svo lengi sem fólk er þolinmótt.“ Hafið þið oft þurft á lögreglunni að halda til að aðstoða ykkur? „Nei, í rauninni ekki, vetrarfríin hafa oftast verið dreifðari, þau eru öll á sama tíma og það er kannski það sem er að breytast núna. Það þarf kannski að biðla til sveitarfélaganna að setja ekki á vetrarfrí í skólum öll á sama tíma, það væri gott að dreifa þessu aðeins, bæði fyrir okkur og fyrir fólkið.“ Þannig að þetta er mikið fólk úr höfuðborginni? „Já, ég held að þetta sé rosalega mikið fólk úr höfuðborginni í vetrarfríunum,“ segir Brynjar að lokum.

Share this article