Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hringvegurinn lokaður undir Eyjafjöllum

  • What: A road closure has been announced for Hringvegur under Eyjafjöllum due to vehicles being stuck.
  • Impact: Travelers in the area are affected, and the road's reopening time is unknown.
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hring­veg­ur­inn lok­að­ur undir Eyja­fjöll­um Guðmundur Atli Hlynsson Hringvegur undir Eyjafjöllum er lokaður vegna bíla sem eru fastir. Ekki er vitað hvenær vegurinn verður opnaður aftur. Þetta segir á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is. Þá hefur þjóðvegur 1 á milli Markarfljóts og Mýrdalssands verið á óvissustigi frá því klukkan 17 en metið verður í fyrramálið hve lengi það stendur yfir. Hann er lokaður sem stendur. „Miklar líkur eru á að færð spillist í kvöld og að þjóðvegur 1 verði ófær í nótt á svæðinu. Getur verið lokað fyrir umferð með litlum sem engum fyrirvara ef færð spillist það hratt að ekki hefst undan að hreinsa vegi á þjónustutíma,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Hér má sjá hvar hringvegurinn er lokaður. umferdin.is / Vegagerðin Fyrir 47 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Þús­und­ir minnt­ust hægri-öfga­manns í Lyon Quentin Deranque, hægrisinnaður aðgerðarsinni, var drepinn á mótmælafundi í síðustu viku. Mikil spenna hefur ríkt að undanförnu í Lyon milli hópa sem eru af öndverðum meiði í stjórnmálum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Lýsa áhyggj­um af breyt­ing­um á reglum um dval­ar­leyfi – „Ísland er orðið heim­ili okkar“ 276 umsagnir bárust um áform dómsmálaráðherra sem koma í veg fyrir að Úkraínumenn sem hafa fengið hæli hér á landi á grundvelli laga um fjöldaflótta fái sjálfkrafa ótímabundið dvalarleyfi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dalvíkurbyggð Skíða­þyrst­ir leita norður – met­aðs­ókn á Böggv­is­staða­fjalli Metfjöldi mætti í brekkurnar á Böggvisstaðafjalli á Dalvík í dag. Umsjónarmaður svæðisins segir kúfinn af Akureyrartraffíkinni líklega hafa skilað sér til Dalvíkur. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Fyrstu ein­stak­lings­verð­laun Dana á Vetr­ar­ól­ymp­íu­leik­um Viktor Hald Thorup er þjóðhetja í Danmörku eftir að hann vann silfurverðlaun í skautahlaupi karla í dag. Þetta eru fyrstu einstaklingsverðlaun Danmerkur frá upphafi Vetrarólympíuleikanna. Keppt var til úrslita í mörgum spennandi greinum í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Ís­lands­banki og Skagi slíta sam­runa­við­ræð­um Íslandsbanki og Skagi hafa slitið samrunaviðræðum. Stjórn Skaga, sem á VÍS, Fossa og Íslensk verðbréf, taldi útspil Íslandsbanka ekki endurspegla virði félagsins. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tollar Trumps Trump boðar enn frek­ari tolla­hækk­an­ir á allan inn­flutn­ing Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að leggja 15% tolla á allan innflutning ofan á hækkanir sem hann hefur þegar boðað. Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi verndartolla, sem Trump lagði á hin ýmsu viðskiptaríki síðasta árið, ólögmæta í gær. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Sjáðu Klæbo vinna öll gull­verð­laun­in sex Norski skíðagöngukappinn Johannes Høsflot Klæbo náði fullkomnum árangri á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu og vann gullið í öllum sex keppnisgreinum sínum. Hér má sjá samantektarmyndband með öllum sigrum Klæbo í lýsingu Gunnars Birgissonar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Holly­wood í hart gegn nýrri gervi­greind Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna krefjast þess að ByteDance, eigandi TikTok, virði lög um höfundarrétt. Nýtt gervigreindarlíkan fyrirtækisins hefur ítrekað verið notað til að brjóta á höfundarrétti síðan það var gefið út. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Sinu­eld­ur á Kjal­ar­nesi komst í hey­rúll­ur – „Við höfðum smá áhyggj­ur“ Búið er að ráða niðurlögum sinuelds sem kviknaði á Kjalarnesi eftir hádegi í dag. Eldurinn barst í heyrúllur. Skjót viðbrögð slökkviliðs komu í veg fyrir að eldurinn breiddist út, segir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Átök eftir mót­mæli í Te­her­an Stúdentar komu saman í höfuðborg Írans í dag og gagnrýndu stjórnvöld. Átök brutust út milli mótmælenda og stuðningsmanna klerkastjórnarinnar. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Andlát: Frank Booker eldri Frank Booker eldri er látinn, 61 árs að aldri. Frank er goðsögn í körfubolta á Íslandi og lék með ÍR, Grindavík og Val á árunum 1991 til 1995. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Fast­eigna­skatt­ur á orku­mann­virki renni til sveit­ar­fé­laga Innviðaráðherra vill að fasteignaskattur vegna orkumannvirkja renni til sveitarfélaga sem verða fyrir áhrifum orkuvinnslu. Lagt er til að rafdreifimannvirki verði áfram undanskilin. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Ragnar sjálf­kjör­inn odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Fjarða­byggð Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð samþykkti framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á fundi sínum í dag. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Eyþór vill aftur efsta sætið hjá Sjálf­stæð­is­flokkn­um í Eyjum Þorgils Jónsson Mynd / Aðsend Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, gefur aftur kost á sér í efsta sæti framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta segir hann í færslu á Facebook. Sjálfstæðisflokkurinn, sem er sem stendur með fjóra af níu fulltrúum í bæjarstjórn, heldur prófkjör 13. mars næstkomandi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Met­fjöldi í Hlíð­ar­fjalli: Lög­regla þurfti að stýra umferð Langar biðraðir hafa myndast á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri og mikið fjölmenni er á svæðinu. Vetrarfrí í grunnskólum landsins er lykilástæðan að sögn forstöðumanns skíðasvæðisins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul við­vör­un vegna hríða­veð­urs á Suð­aust­ur­landi Vegagerðin varar við versnandi færð og skyggni í Mýrdal og á Mýrdalssandi í kvöld. Gul viðvörun hefur verið gefin út á Suðausturlandi og gildir til hádegis á morgun. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Vin­sæld­ir Mette-Marit hríð­falla í kjöl­far hneyksl­is­mála Norðmenn gefa Mette-Marit krónprinsessu falleinkunn í nýrri könnun um vinsældir norsku konungsfjölskyldunnar. Hún fékk meðaleinkunnina 7,4 í janúar en nú fær hún 3,7. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Dæmi um að fólk með óp­í­ó­íða­fíkn hætti í með­ferð vegna komu­gjalda Dæmi eru um að fólk með ópíóíðafíkn hætti í meðferð vegna 17 þúsund króna komugjalda á Vogi. Rótin, félag um málefni fólks með fíknivanda, vill að heilbrigðisráðherra beiti sér í málinu. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Sjötta gullið og fullt hús hjá Klæbo - Dagur hring­að­ur Norðmaðurinn Johannes Hosflot Klæbo sigraði í 50 km skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum í dag. Hann vann gullverðlaun í öllum sex keppnisgreinum sínum á leikunum. Dagur Benediktsson var meðal keppenda en var hringaður þegar rúmir 10 km voru eftir. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Íbúar kjósa um sam­ein­ingu Ár­nes­hrepps og Kald­rana­nes­hrepps Sveitarstjórnir tveggja sveitarfélaga á Ströndum, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps, efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna. Samstarfsnefnd sveitarfélaganna gaf út álit þar sem segir að sameining sé vænlegur kostur. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Forval hjá VG um helg­ina Góður gangur er í forvali Vinstri Grænna fyrir sæti á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Úrslit verða kynnt fyrir klukkan sex á morgun. Fjöldi félaga í Reykjavíkurfélagi VG jókst um fimmtung fyrir forvalið. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Fór til Dan­merk­ur til að drepa tvo menn því hann vant­aði pening Maður sem ferðaðist frá Noregi til Danmerkur í því skyni að ráða tvo menn af dögum segist ekki vita hvers vegna þær urðu fyrir valinu. Hann hafi samþykkt að drepa mennina fyrir einstakling sem hann þekkti ekkert því hann vantaði pening. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Óum­flýj­an­legt að inn­heimta fast­eigna­gjöld í Grinda­vík – „Þetta er erfitt fyrir marga“ Fasteignagjöld voru innheimt í Grindavík í febrúar, eftir að hafa verið felld niður í tvö ár vegna jarðhræringa. Forseti bæjarstjórnar segir þörf á að fjármagna þjónustu innan bæjarins og er bjartsýn á framtíð Grindavíkur. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vara við stað­bund­inni hríð á Suð­ur­landi Hugrún Hannesdóttir Diego Búist er við talsverðum hríðarbyl í Mýrdal og á Mýrdalssandi í kvöld og í nótt. Vegagerðin varar við versnandi færð og skyggni á Hringveginum á þeim slóðum. Hríðin gæti varað þar til síðdegis á morgun. Varað er við versnandi færð og skyggni. Mynd tengist frétt ekki beint. RÚV / Kristín Sigurðardóttir Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Skotland Train­spott­ing 30 ára – Ekki aðeins saga um neyslu heldur vopn í menn­ing­ar­stríði Trainspotting var mikilvægt vopn í menningarstríði verkalýðsins í Skotlandi við yfirstéttina í Bretlandi, segir ritstjóri menningartímarits sem gaf fyrstu kafla sögunnar út. 30 ár eru liðin síðan kvikmyndin var frumsýnd. 21. febrúar 2026 kl. 9:00ERLENDAR FRÉTTIR Panama Graf­hýsi talið varpa ljósi á líf frum­byggja Mið- og Suður-Am­er­íku Grafhýsi sem talið er vera frá árunum 800 til 1000 eftir okkar tímabil fannst nýlega við fornleifauppgröft í Panama. Þar getur að líta gull og leirker og er talið varpa frekara ljósi á líf frumbyggja fyrir nýlendutíma Spánverja. 21. febrúar 2026 kl. 8:22INNLENDAR FRÉTTIR Andlát Har­ald­ur Sig­urðs­son látinn Haraldur Sigurðsson, skemmtikraftur með meiru er látinn á 84. ári. Hann og Laddi bróðir hans voru eitt vinsælasta gríntvíeyki landsins um árabil. 21. febrúar 2026 kl. 8:12INNLENDAR FRÉTTIR Veður Áfram kalt í veðri Hugrún Hannesdóttir Diego Djúp lægð suðvestur í hafi þokast norðaustur og veldur hægt vaxandi austanátt í dag. Búist er við þurru og björtu veðri en dálitlum éljum austanlands. Austan kaldi síðdegis og skýjað með köflum en allhvasst eða hvasst syðst og stöku él þar. Í nótt komst frost niður í 10 til 15 stig og áfram verður kalt í veðri í dag. Dægursveifla hitans er hins vegar orðin það mikil að hiti nær sums staðar að skríða yfir frostmark sunnan heiða. Búist er við dálítilli slyddu eða snjókomu sunnanlands á morgun og 0 til 6 stiga frosti. Forst komst niður í 10 til 15 stig í nótt. RÚV / Ragnar Visage 21.

Share this article