- What: The Russian security service FSB considers Telegram a threat to state security.
- Impact: Millions of Russians use Telegram, including soldiers in Ukraine, and there are fears the service may be banned.
Auglýsingaskilti í Moskvu sem hvetur fólk til að ganga til liðs við launaðar hersveitir.EPA / MAXIM SHIPENKOV Rússneska öryggisþjónustan FSB segir samskiptamiðilinn Telegram geta ógnað öryggi ríkisins. Milljónir Rússa nota miðilinn að staðaldri, þar á meðal hermenn á vígvöllum Úkraínu. Öryggisþjónustan segir notkun miðilsins iðulega hafa stefnt lífi hermanna í tvísýnu. Margir Rússar líta á Telegram sem mikilvægustu uppsprettu óháðra upplýsinga og óttast nú að notkun miðilsins verði bönnuð.