Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jón kemur upp um ráðherra

  • What: An Icelandic politician, Jón Gnarr, revealed details about the resignation of Guðbrandur Einarsson, another politician, due to a scandal involving alleged solicitation of prostitution.
  • Impact: The revelation sheds light on internal party dynamics and the circumstances surrounding Einarsson's departure.
Read Full Article →

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, dustaði óvænt rykið af mánaðargamalli afsögn fyrrverandi samherja síns Guðbrands Einarssonar vegna vændiskaupa sem þó aldrei urðu að veruleika. Jón rekur afsögnina í löngu máli í grein á DV og virðist, hvort sem það sé með ráðum gert eða ekki, upplýsa lesendur um að pressað hafi verið á Guðbrand af flokksforystunni að segja af sér. „Það kom fram á þessum fundi að búið væri að vera að vinna í þessu máli og aðeins sá afarkostur í stöðunni að þingmaðurinn segði af sér þingmennsku. Ef hann gerði það ekki þá myndi þetta mál líklega halda áfram út í hið óendanlega, fjölmiðlar myndu halda áfram að garfa í þessu og jafnvel grafa eitthvað nýtt upp og svo yrði honum og þá auðvitað okkur hinum líka, nuddað upp úr þessu í umræðunni, bæði á þingi og á samfélagsmiðlum. Fjölmörg og löng samtöl höfðu átt sér stað um daginn og þingmaðurinn sagður kominn á þessa skoðun sjálfur, hann væri búinn að vega og meta stöðuna og sæi að þetta væri eina útleiðin,“ skrifar Jón. Þessi lýsing er í mótsögn við orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, sem sagði ákvörðunina fyrst og síðast hafa verið Guðbrands. Að auki héldu ráðherrarnir Daði Már Kristófersson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Kristrún Frostadóttir því sama fram. Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article