- What: Apple is reportedly increasing its focus on developing new wearable devices, including smart glasses and AI-powered AirPods.
- Impact: The company is investing in AI technology for new product categories.
Apple hefur ákveðið að hraða þróun þriggja nýrra klæðanlegra tækja (e. wearable devices). Ákvörðunin er hluti af aukinni áherslu á tækjum sem byggja á notkun gervigreindartækni. Samkvæmt heimildarmönnum Bloomberg hefur Apple sett aukinn þunga í þróun snjallgleraugna, hengiskraut sem hægt er að festa á skyrtu eða nota sem hálsmen, og nýja kynslóð AirPods-heyrnartóla sem nýtir gervigreindartækni í auknum mæli. Öll þrjú tækin eru þróuð út frá stafræna aðstoðarmanninn Siri, sem mun styðjast við sjónrænt samhengi til að framkvæma aðgerðir. Tim Cook, forstjóri Apple, gaf til kynna á starfsmannafundi fyrr í mánuðinum að fyrirtækið væri að leggja aukna áherslu á gervigreindartæki og bætti við að unnið væri að nýjum vöruflokkum sem reiða sig á gervigreind. Hann sagði Apple vera að fjárfesta í nýrri tækni. „Heimurinn er að breytast hratt,“ er haft eftir honum. Hlutabréfaverð EssilorLuxottica, framleiðanda Ray-Ban, hefur lækkað um 10% í vikunni sem má einkum rekja til þess að félagið þróar snjallgleraugun í samvinnu með Meta, móðurfélagi Facebook.