Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rúta með 27 farþegum fór út af á Reynisfjalli og ofan í skurð

  • What: A bus carrying 27 passengers went off the road in Reynisfjall, Iceland.
  • Impact: Passengers were assisted by rescue teams and taken to shelter; no injuries were reported.
Read Full Article →

Það hefur verið mikið að gera hjá björgunarsveitum á Suðurlandi í dag. Að sögn Orra Örvarssonar, formanns björgunarsveitarinnar Víkverja, var fyrsta útkall sveitarinnar í dag rétt fyrir hádegi þar sem rúta með 27 farþegum hafði farið út af á Reynisfjalli. „Hún fór töluvert langt út fyrir veg og ofan í skurð og mikil lukka að það skyldi enginn meiðast í henni.“ Björgunarsveitarfólk aðstoðaði farþega út úr rútunni og þeim var komið í skjól í Ice Wear í Vík. Stuttu eftir hádegi kom annað útkall. Tvær litlar rútur við Pétursey höfðu hafnað utan vegar. Björgunarsveit tókst að koma þeim inn á veg aftur. Tvær rútur fóru einnig út af við Öxafótalæk um sex leytið í gærkvöldi og enduðu samsíða utan í hvorri annarri. Þeim rútum var komið upp á veg í dag og þær eru farnar af stað aftur. Engin slys urðu á fólki. Björgunarsveitin hefur aðstoðað fjölda ökumanna síðan í gær Orri segir að björgunarsveitin hafi aðstoðað fjöldann allan af ökumönnum fólksbíla síðan í gær, einhver ökutæki hafi orðið fyrir tjóni en engin meiðsl á fólki. Eru margir strandarglópar á Vík? „Ekki núna, það er verið að sækja þessa 27 farþega sem voru í rútunni sem hafnaði utan vegar á Reynisfjalli.“ Er vonskuveður? „Það er slæmt við Pétursey eins og staðan er núna, úrkoma og mikill vindur.“ Ökumenn eru beðnir um að fara varlega.

Share this article