- What: A lawyer in Iceland has been sentenced to five months in prison and stripped of his right to practice law for drug smuggling.
- Impact: The lawyer was found guilty of importing nearly 400 grams of cocaine with the intent to distribute.
Innlent | mbl | 22.2.2026 | 15:17 Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt lögmann í fimm mánaða fangelsi og svipt hann málflutningsréttindum sínum fyrir héraðsdómi vegna fíkniefnalagabrots. Þann 8. júní árið 2022 stóð maðurinn að innflutningi á tæplega 400 grömmum af kókaíni, með styrkleika 75-76%, sem voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Maðurinn flutti fíkniefnin til landsins með flugi frá Barcelona á Spáni og voru þau falin í farangri hans. Fíkniefnin fundust í lofttæmdum poka með fjólubláum kubbum. Maðurinn sagðist hafa verið á Spáni í fríi þar sem hann gisti hjá vini sínum og á hóteli. Búinn að missa öll tök Í skýrslutöku hjá lögreglu sagðist maðurinn alls ekki flytja inn fíkniefni og myndi ekki gera slíkt. Sagði hann að maðurinn sem hann gisti hjá væri vinur vinar sem hefði misnotað aðstöðu sína og sett efnin í töskuna. Um væri að ræða hættulega menn og vildi hann ekki gefa upp nöfn. Viku síðar sagði hann við lögreglu að hann væri stórskuldugur og væri búinn að missa öll tök. Hann sagðist þá hafa verið beðinn um að fara til Spánar og veita einhverja ráðgjöf varðandi fjárfestingar og að hann hefði verið búinn að semja um fastar afborganir af skuldum sínum. Sagðist hann hafa verið spurður hvort hann væri til í að flytja fíkniefni en hann svaraði neitandi. „Ég sagðist ekki geta tekið slíka áhættu þar sem ég er lögmaður og er með mín réttindi,“ er haft eftir manninum í dóminum. Í skýrslutöku hálfu ári síðar kvaðst hann taka til baka allt sem hann hefði sagt í fyrstu skýrslutöku og neitaði að tjá sig. Gat ekki sagt nei Fyrir dómi var vitnisburður mannsins annar. Hann sagðist hafa kynnst eldri manni frá öðru landi sem hefði viljað fá sig til að aðstoða sig við „alls konar lögfræðivinnu á Íslandi“. Sá maður hefði viljað stofna fyrirtæki og „reyna að hasla sér einhvern völl“. Maðurinn sagðist hafa á þessum tíma orðið „veikari og veikari“ af fíkniefnanotkun og tekið kókaín á hverjum degi. Hinn maðurinn hefði lánað ákærða „fullt af kókaíni“ og hefði ákærði orðið mjög skuldugur honum. „Ég gat ekki sagt nei við hann,“ sagði hann fyrir dómi. Maðurinn var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. mbl.is/Hákon Hent fyrir úlfana Maðurinn hefði beðið ákærða um að hitta sig á Spáni og hefði viljað kynna hann fyrir „einhverjum kunningjum sínum“ og mönnum sem hefðu haft áhuga á því að hefja viðskipti á Íslandi. Ákærði hefði farið til Spánar og hitt þar marga „og vissi náttúrulega að þetta voru vafasamir menn“. Ákærði lýsti því fyrir dómi að maðurinn hefði „í rauninni átt mig á þessum tíma þannig að ég var bara að reyna að gera allt sem ég gat til þess að borga til baka einhvern veginn, smátt og smátt, það sem ég skuldaði.“ Maðurinn sagðist þó aldrei hafa grunað að hann yrði notaður sem burðardýr. Þá sagðist hann ekki hefði haldið að mennirnir myndu „henda mér fyrir úlfana með því að troða fíkniefnum í töskuna mína“, heldur frekar nota hann sem lögfræðing. Hættur lögmennsku Maðurinn sagðist fyrir dómi vera hættur lögmennsku og hann hefði farið í meðferð erlendis árið 2023 og verið eftir það á áfangaheimili í tæpt ár. Þess vegna dróst mál hans fyrir dómstólnum. Hann sagðist nú starfa við byggingarvinnu, garðyrkju og slíkt. Ákærði sagðist hafa farið í meðferðina í útlöndum þar sem hann hefði ekki verið öruggur á Íslandi. Maðurinn sem hann skuldaði hefði fengið að vita hjá lögreglu að ákærði hefði veitt upplýsingar í skýrslutöku. Það hefði stofnað lífi hans í hættu. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skýr skilaboð til Trumps: „Nei takk“ Fyrsta liðið til að falla í febrúar Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Believed to be under the gravel Stórleikur Íslendinganna Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sendi Trump 9 milljarða dala reikning „Flestir komu inn á síðustu dögum“ Endurgreiðir Trump 16,5 billjónir? Bollur Aðalheiðar slá í gegn í Noregi Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Tengsl blárra augna við sifjaspell Munum sjá snjó í borginni í vikunni Lokað í Bláfjöllum Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Gengur morðingi laus? Veðurofsinn teppti á annað þúsund manns Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Gul viðvörun í gildi til hádegis Rúta hafnaði ofan í skurði í Mýrdal Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Skýr skilaboð til Trumps: „Nei takk“ Fyrsta liðið til að falla í febrúar Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Believed to be under the gravel Stórleikur Íslendinganna Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lesið fyrir ferfætta á Nesinu Sendi Trump 9 milljarða dala reikning Endurgreiðir Trump 16,5 billjónir? Vilja rannsaka hvort Andrew hafi framið landráð Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Tengsl blárra augna við sifjaspell Munum sjá snjó í borginni í vikunni Lokað í Bláfjöllum Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Gengur morðingi laus? Veðurofsinn teppti á annað þúsund manns Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Gul viðvörun í gildi til hádegis Rúta hafnaði ofan í skurði í Mýrdal Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka