Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Vegurinn yfir Reynisfjall opnaður Ásrún Aldís Hreinsdóttir Umferð um veginn yfir Reynisfjall við Vík var opnaður aftur fyrr í kvöld eftir að flutningabíll sat þar fastur vegna bilunar. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er enn mikil vetrarfærð á veginum. Vegurinn var þjónustaður til klukkan tíu sem er um klukkustund lengur en vanalegt er. Vegna veðurs má búast við að færð spillist og geti orðið ófær. Víða eru hálkublettir á Suðurströndinni, krapi og skafrenningur er á Reynisfjalli. Mynd aðsend. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Þetta er hlýtt í hjartað“ Konudagurinn markar upphaf Góu og vaxandi birtu. Hefð hefur skapast fyrir því að menn gleðji konurnar í lífi sínu í tilefni dagsins til dæmis með blómum eða sætindum og á því var engin undantekning í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Fjögurra tíma barátta við sinueld Sinueldur sem kviknaði við Elliðavatn breiddist hratt út og barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Meðlimir Vöku, sem skipa meirihluta í Stúdentaráði Háskóla Íslands, hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor háskólans. Tillagan tengist meðal annars meintu ábyrgðarleysi rektors í hækkun skrásetningargjalda skólans. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stóriðja Vonast til að koma álverinu í full afköst í lok júlí Forstjóri Norðuráls segist vonast til þess að nýir spennar í álverinu á Grundartanga komist í gang í apríl. Umfang tjónsins vegna bilunarinnar í haust er enn óljóst. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Flutningabíll fastur á Reynisfjalli: Vegurinn lokaður á meðan trukkurinn er losaður Veginum yfir Reynisfjall hefur verið lokað vegna flutningabíls sem er fastur á veginum. Verið er að vinna við að losa hann. Veginum hefur verið lokað af og til í dag á meðan bílar eru losaðir. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal vann grannaslaginn og heldur fimm stiga forystu Jóhann Páll Ástvaldsson Eze fagnar einu af mörkum sínum í kvöld. AP / Frank Augstein Arsenal vann Tottenham Hotspur 1-3 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið er sem fyrr í efsta sæti og með fimm stiga forystu á Manchester City, sem á þó leik til góða. Eberechi Eze kom Arsenal yfir eftir 32 mínútur en Randal Kolo Muani jafnaði metin fyrir Spurs eftir klaufagang hjá Declan Rice skömmu síðar. Viktor Gyökeres kom Arsenal aftur yfir með firnaföstu skoti utan teigs á 47. mínútu. Það var svo Eze sem hálfpartinn gerði út um leikinn á 61. mínútu. Gyökeres skoraði fjórða markið í uppbótartíma. Þetta var fyrsti leikur Igor Tudor, nýs stjóra Tottenham. Liðið er sem fyrr í 16. sæti, fjórum stigum frá fallsæti. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Ágúst Ingi í 6. sæti á tvíslá í Heimsbikarmóti Fimleikakappinn Ágúst Ingi Davíðsson náði ágætis árangri á heimsbikarmóti í Þýskalandi í dag. Ágúst varð í 6. sæti á tvíslá og stigin gætu reynst mikilvæg upp á að komast á HM í haust. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Reykjanesbær vill kaupa hluta af lóð kísilverksmiðjunnar í Helguvík Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt kauptilboð sveitarfélagsins í lóð kísilversins í Helguvík. Formaður bæjarráðs segir áform vera um vistvæna uppbyggingu á staðnum. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Tómatsósufordómar á Íslandi Pönkhljómsveitin Þögn gaf út sína fyrstu stuttskífu, Læti, föstudaginn 13. febrúar. Ólátagarður á Rás 2 spjallaði við sveitina. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Líf hlutskörpust í forvali Vinstri grænna Metþátttaka var í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Líf Magneudóttir varð í fyrsta sæti, Stefán Pálsson í öðru og í því þriðja Finnur Ricart Andrason. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti KA fór upp fyrir ÍBV með sigri Jóhann Páll Ástvaldsson Logi Gautason. Rúv / Mummi Lú KA vann 29-28 sigur gegn ÍBV í efstu deild karla í handbolta. Einar Rafn Eiðsson fór fyrir KA- mönnum með níu mörk úr ellefu skotum en auk þess var hann með sjö stoðsendingar. Ágúst Elís Björgvinsson varði 15 skot fyrir KA og var með 34,9% vörslu. Hákon Daði Styrmisson og Andri Erlingsson voru með sjö mörk hvor fyrir ÍBV. ÍBV leiddi 20-24 þegar 13 mínútur voru eftir en KA var sterkara á lokakaflanum. KA fer upp í 5. sæti með 24 stig en ÍBV er í 6. sæti með 23. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Búið að slökkva sinueldinn Fjölmennt lið slökkviliðsmanna barðist við sinueld frá því um þrjú síðdegis til klukkan sjö í kvöld. Eldurinn brann um tíð við Þingaverfi og Guðmundarlund í Kópavogi. Það sem virtist í fyrstu ætla að verða takmarkaður eldur varð að lokum mikið bál sem reyndist erfitt að slökkva. SAMANTEKT Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hringavitleysa með VAR og MacAllister lauk með sigri Liverpool Jóhann Páll Ástvaldsson MacAllister fagnar marki sínu. IMAGO Liverpool vann dramatískan 0-1 sigur gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Alexis MacAllister skoraði mark á 89. mínútu sem var dæmt af með VAR-myndbandsdómgæslu vegna hendi. Argentínumaðurinn gafst þó ekki upp og skoraði aftur. VAR-myndbandsdómgæslan kom þá aftur til sögunnar til að skoða hvort Virgil van Dijk væri mögulega rangstæður. Að lokum stóð markið og Liverpool-menn gátu fagnað. Liverpool er nú með 45 stig í 6. sæti en Forest er í 17. sæti með 27 stig. Önnur úrslit: Crystal Palace 1 - 0 Wolves Sunderland 1 - 3 Fulham Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Verðum að senda allt sem við eigum í þetta og meira til Slökkviliðið hefur sent nokkra bíla í Heiðmörk til að berjast við sinueld nærri Elliðavatni. Svæðið sem brennur hefur stækkað og er erfitt viðureignar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Nielsen við Trump: „Það er nei takk héðan“ Formaður landsstjórnar Grænlands afþakkar sjúkrahússkip sem Donald Trump segist hafa sent til landsins. Biður hann um að hafa samband frekar en kasta yfirlýsingum fram á samfélagsmiðlum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Sinueldur við Elliðavatn Þorgils Jónsson Þessi mynd var tekin á vettvangi í dag. Mynd / Martin Meyer Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er komið að Elliðavatni vegna tilkynningar um sinubruna. Viðmælandi fréttastofu á varðstofu sagði að upphaflega hefði mannskapur frá einni stöð verið kallaður á staðinn en nú hafi verið kallaður út aukamannskapur frá annarri stöð. Hann bætti við að menn á vettvangi hefðu hins vegar ekki verið svartsýnir um að ná tökum á eldinum. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Andersson náði fram hefndum: „Eins og hún sé í annarri íþrótt“ Ebba Andersson sýndi hvað í henni býr og vann með yfirburðum í 50 km skíðagöngu kvenna. Fyrir átta dögum síðan vakti hún heimsathygli eftir ævintýralegt fall sitt í boðgöngu. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Hélt kannski að ég hefði verið sendur í helvíti” Móðir drengs sem dvaldi í Bakkakoti upplifir að hún hafi bjargað honum frá frekari skaða en situr eftir með sára minningu um annan dreng sem reyndi að flýja bæinn. Sonur hennar lýsir þrúgandi ofbeldismenningu og kynferðislega þrungnu andrúmslofti. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Ungverjar bæta í hótanir gegn Úkraínu Þorgils Jónsson Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands hefur bætt enn í hótanir gegn Úkraínu vegna olíuleiðslu sem liggur gegnum landið og færir Ungverjum og Slóvökum rússneska olíu. Engin olía hefur flætt þá leið í tæpan mánuð. Stjórnvöld í Kænugarði segja það vegna þess að leiðslan hafi skemmst mikið í loftárás Rússa. Ungverjar hótuðu fyrir helgi að stöðva lán ESB til Úkraínu nema opnað verði fyrir leiðsluna á ný og Slóvakar segjast munu loka á neyðarraforku til Úkraínu. Í dag sagði Orban svo að Ungverjar myndu stöðva tuttugasta þvingunaraðgerðapakka ESB gegn Rússum nema olía flæði á ný. Aðgerðir ESB þurfa samþykki allra aðildarríkjanna. AP/Pool AP / Alex Brandon Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Skutu mann sem braust inn í Mar-a-Lago Lífvarðasveit Bandaríkjaforseta skaut mann til bana eftir að hann fór í óleyfi inn á bústað hans í Mar-a-Lago. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa Skaðleg efni fundust í öllum heyrnartólum sem voru prófuð Efni sem geta valdið krabbameini, hormónatruflunum og hægt á taugaþroska fundust í öllum heyrnartólum sem prófuð voru í nýrri evrópskri rannsókn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Rúta með 27 farþegum fór út af á Reynisfjalli og ofan í skurð Lögreglan fékk útkall rétt fyrir hádegi í dag vegna rútu með 27 farþegum sem hafði farið út af á Reynisfjalli. Björgunarsveit var kölluð til sem aðstoðaði farþega og kom þeim í skjól. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Hamas velja leiðtoga – tveir koma til greina Enginn óskoraður leiðtogi hefur verið yfir Hamas-samtökunum síðan Ísrael drap tvo með stuttu millibili árið 2024. Nú styttist í að nýr leiðtogi verið valinn. 22. febrúar 2026 kl. 12:48INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Mörg þúsund færri frá Bandaríkjunum Farþegum frá Bandaríkjunum fækkaði um 27 prósent í janúar frá því í janúar í fyrra. Brottfarir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli hafa ekki verið færri í tíu ár fyrir utan covid árin. 22. febrúar 2026 kl. 12:46INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kalla eftir því að ópíóíðameðferð og þröskuldar við hana verði skoðuð heildrænt Efnaminna fólk og minnihlutahópar hafa ekki greitt aðgengi að ópíóíðameðferð að mati formanns Matthildar, samtaka um skaðaminnkun. Strangar kröfur og kostnaður geta komið í veg fyrir að fólk með fíknivanda klári meðferð. 22. febrúar 2026 kl. 12:38INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Enn berst slökkvilið við eld í sinu Brynjólfur Þór Guðmundsson Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur slökkt sinuelda á tveimur stöðum í morgun, þar á meðal á söm