Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Höfuðpaur stærsta eiturlyfjahrings Mexíkó drepinn í hernaðaraðgerðum

  • What: The leader of Mexico's largest drug cartel, Nemesio Oseguera Cervantes, known as "El Mencho," was killed in a military operation.
  • Impact: Cervantes' death is a significant blow to the Jalisco New Generation (CJNG) cartel, known for its violent activities.
Read Full Article →

Höfuðpaur stærsta eiturlyfjahrings Mexikó, Nemesio Oseguera Cervantes, betur þekktur sem „El Mencho“, var skotinn í hernaðaraðgerð mexíkóska hersins í bænum Tapalpa í vesturhluta Mexíkó í dag. Cervantes lést í sjúkraflugi til Mexíkóborgar. Cervantes er einn þeirra glæpamanna sem mexíkóska ríkið hefur lagt hvað mesta áherslu á að handsama og var hann flokkaður sem einn efirlýstasti maður bæði Mexíkó og Bandaríkjanna. Cervantes var leiðtogi og höfuðpaur eiturlyfjahringsins Jalisco New Generation (CJNG). Eiturlyfjahringurinn hefur verið alræmdur fyrir ofbeldisfull athæfi sitt. Upplýsingar frá Bandaríkjunum gerðu útslagið Í yfirlýsingu frá mexíkóska ríkinu kemur fram að viðbótarupplýsingar frá bandarískum yfirvöldum hefðu gert útslagið. Bandaríkin hafa flokkað hópinn sem hryðjuverkasamtök og sakað hann um innflutning á kókaíni, heróíni og metamfetamíni til landsins. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sett mikla pressu á að mexíkósk stjórnvöld stöðvi flæði eiturlyfja, þá sérstaklega fentanýls, frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Árásin sem gerð var á eiturlyfjahring Cervantes er því liður í stríði Trumps stjórnarinnar gegn eiturlyfjum. Í tilkynningu frá Varnarmálaráðuneyti Mexíkó segir að sex meðlimir eiturlyfjahringsins hafi einnig verið felldir í aðgerðum hersins. Ýmis vopn voru gerð upptæk á vettvangi, þar á meðal voru eldflaugar sem geta skotið niður flugvélar og eyðilagt brynvörð ökutæki.

Share this article