Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ein slökkvisveit hugaði að kraumandi hita í ösku sinueldsins

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Ein slökkvi­sveit hugaði að kraum­andi hita í ösku sinu­elds­ins Markús Þ. Þórhallsson Slökkviliðsmenn að berja niður sinueldinn í gær. RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Ein sveit á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fór aftur að Vatnsendahlíð seint í gærkvöld þar sem mikill sinueldur logaði í gærdag nærri Guðmundarlundi. Varðstjóri slökkviliðsins segir hitamyndavél í dróna lögreglunnar hafa greint að eitthvað kraumaði undir niðri. Það hafi verið kveðið niður og allir slökkviliðsmenn löngu komnir til baka aftur. Varðstjórinn segir að öðru leyti nóttina hafa verið rólega. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zel­en­sky segir Pútín hafa hleypt þriðju heims­styrj­öld­inni af stað með inn­rás­inni fyrir fjórum árum Úkraínuforseti segir að Rússlandsforseti hafi hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir rétt tæpum fjórum árum. Veita þyrfti honum harða mótspyrnu svo hann reyni ekki frekari landvinninga. Eftirgjöf lands komi ekki til greina. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Íran Vonast eftir fundi um kjarn­orku­samn­ing í skugga hótana um árásir Banda­ríkja­manna Vonir standa til að Íranir og Bandaríkjamenn setjist að samningaborði um kjarnorkusamning á fimmtudag. Utanríkisráðherra Írans segir samningsdrög í smíðum eftir síðustu fundi sendinefndanna í Genf. Bandaríkin spyrja hví Íranir hafi ekki látið undan. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Pútín segir end­ur­nýj­un kjarn­orku­vopna­bún­að­ar algert for­gangs­at­riði Rússlandsforseti boðar eflingu allra herja landsins og segir uppbyggingu og endurnýjun kjarnorkuvopnabúnaðar algert forgangsverkefni. Þannig væri öryggi tryggt með fælingu eftir að samningur um fækkun kjarnavopna rann sitt skeið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Veitur: Heppni að gróð­ur­eld­ar sköð­uðu ekki vatns­ból­in Forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum segir að heppni hafi ráðið því að vatnsból höfuðborgarbúa hlutu ekki skaða af sinueldunum við Elliðavatn í gær. Ekki þurfi mikið að gerast til að mengunarefni skolist niður í drykkjarvatn. Öll umgengni skapi hættu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ic­elandair hefur aflýst ferðum til og frá aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna Markús Þ. Þórhallsson Icelandair hefur aflýst ferðum til og frá austurströnd Bandaríkjanna. RÚV / Ragnar Visage Icelandair hefur aflýst tveimur komum frá New York klukkan sex í fyrramálið og ferðum þangað og til Boston síðdegis vegna stórhríðar á austurströnd Bandaríkjanna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur í færslu á Facebook eftir bandarískum veðurfræðingum að á JFK-flugvelli við New York megi búast við yfir fimmtíu sentímetrum af snjó. Veðrið mun að sögn Veðurstofu Bandaríkjanna færast hratt í aukana allt frá Maryland suðaustur til Nýja Englands og getur valdið usla í samgöngum. Líklegt þykir að snjókoma og hvassviðri valdi rafmagnstruflunum eða straumrofi á svæði þar sem næstum 54 milljónir manna búa. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Borg­ar­stjóri New York boðar ferða­bann vegna stór­hríð­ar og storms Stórhríð og stormur gengur yfir Bandaríkin norðaustanverð og borgarstjórinn í New York hefur boðað ferðabann. Helstu stofnæðum verður lokað í hið minnsta hálfan sólarhring. Mikið snjóar og rafmagn getur farið af stórum svæðum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Höf­uð­paur stærsta eit­ur­lyfja­hrings Mexíkó drep­inn í hern­að­ar­að­gerð­um Höfuðpaur stærsta eiturlyfjahrings Mexikó var drepinn í öryggisaðgerðum hersins í Mexíkó í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti landsins. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir One Battle After An­oth­er heldur áfram að sópa til sín verð­laun­um One Battle After Another heldur áfram að raða inn verðlaunum en hún var valin besta kvikmyndin á BAFTA-verðlaunahátíðinni í kvöld og leikstjórinn hlaut einnig verðlaun. Myndin hreppti alls sex. Norsk mynd var í fyrsta sinn valin sú besta erlenda. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Veg­ur­inn yfir Reyn­is­fjall opn­að­ur Ásrún Aldís Hreinsdóttir Umferð um veginn yfir Reynisfjall við Vík var opnaður aftur fyrr í kvöld eftir að flutningabíll sat þar fastur vegna bilunar. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er enn mikil vetrarfærð á veginum. Vegurinn var þjónustaður til klukkan tíu sem er um klukkustund lengur en vanalegt er. Vegna veðurs má búast við að færð spillist og geti orðið ófær. Víða eru hálkublettir á Suðurströndinni, krapi og skafrenningur er á Reynisfjalli. Mynd aðsend. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Þetta er hlýtt í hjart­að“ Konudagurinn markar upphaf Góu og vaxandi birtu. Hefð hefur skapast fyrir því að menn gleðji konurnar í lífi sínu í tilefni dagsins til dæmis með blómum eða sætindum og á því var engin undantekning í dag. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Fjög­urra tíma bar­átta við sinu­eld Sinueldur sem kviknaði við Elliðavatn breiddist hratt út og barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Leggja fram van­traust­s­til­lögu á hendur rektor Meðlimir Vöku, sem skipa meirihluta í Stúdentaráði Háskóla Íslands, hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor háskólans. Tillagan tengist meðal annars meintu ábyrgðarleysi rektors í hækkun skrásetningargjalda skólans. 22. febrúar 2026 kl. 19:30INNLENDAR FRÉTTIR Stóriðja Vonast til að koma ál­ver­inu í full afköst í lok júlí Forstjóri Norðuráls segist vonast til þess að nýir spennar í álverinu á Grundartanga komist í gang í apríl. Umfang tjónsins vegna bilunarinnar í haust er enn óljóst. 22. febrúar 2026 kl. 18:39INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Flutn­inga­bíll fastur á Reyn­is­fjalli: Veg­ur­inn lok­að­ur á meðan trukk­ur­inn er los­að­ur Veginum yfir Reynisfjall hefur verið lokað vegna flutningabíls sem er fastur á veginum. Verið er að vinna við að losa hann. Veginum hefur verið lokað af og til í dag á meðan bílar eru losaðir. 22. febrúar 2026 kl. 18:39ÍÞRÓTTIR Fótbolti Ars­en­al vann granna­slag­inn og heldur fimm stiga for­ystu Jóhann Páll Ástvaldsson Eze fagnar einu af mörkum sínum í kvöld. AP / Frank Augstein Arsenal vann Tottenham Hotspur 1-3 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið er sem fyrr í efsta sæti og með fimm stiga forystu á Manchester City, sem á þó leik til góða. Eberechi Eze kom Arsenal yfir eftir 32 mínútur en Randal Kolo Muani jafnaði metin fyrir Spurs eftir klaufagang hjá Declan Rice skömmu síðar. Viktor Gyökeres kom Arsenal aftur yfir með firnaföstu skoti utan teigs á 47. mínútu. Það var svo Eze sem hálfpartinn gerði út um leikinn á 61. mínútu. Gyökeres skoraði fjórða markið í uppbótartíma. Þetta var fyrsti leikur Igor Tudor, nýs stjóra Tottenham. Liðið er sem fyrr í 16. sæti, fjórum stigum frá fallsæti. 22. febrúar 2026 kl. 18:24ÍÞRÓTTIR Fimleikar Ágúst Ingi í 6. sæti á tvíslá í Heims­bik­ar­móti Fimleikakappinn Ágúst Ingi Davíðsson náði ágætis árangri á heimsbikarmóti í Þýskalandi í dag. Ágúst varð í 6. sæti á tvíslá og stigin gætu reynst mikilvæg upp á að komast á HM í haust. 22. febrúar 2026 kl. 18:22INNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Reykja­nes­bær vill kaupa hluta af lóð kís­il­verk­smiðj­unn­ar í Helgu­vík Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt kauptilboð sveitarfélagsins í lóð kísilversins í Helguvík. Formaður bæjarráðs segir áform vera um vistvæna uppbyggingu á staðnum. 22. febrúar 2026 kl. 17:59MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Tóm­at­s­ósu­for­dóm­ar á Ís­landi Pönkhljómsveitin Þögn gaf út sína fyrstu stuttskífu, Læti, föstudaginn 13. febrúar. Ólátagarður á Rás 2 spjallaði við sveitina. 22. febrúar 2026 kl. 17:51INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Líf hlut­skörp­ust í for­vali Vinstri grænna Metþátttaka var í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Líf Magneudóttir varð í fyrsta sæti, Stefán Pálsson í öðru og í því þriðja Finnur Ricart Andrason. 22. febrúar 2026 kl. 17:27ÍÞRÓTTIR Handbolti KA fór upp fyrir ÍBV með sigri Jóhann Páll Ástvaldsson Logi Gautason. Rúv / Mummi Lú KA vann 29-28 sigur gegn ÍBV í efstu deild karla í handbolta. Einar Rafn Eiðsson fór fyrir KA- mönnum með níu mörk úr ellefu skotum en auk þess var hann með sjö stoðsendingar. Ágúst Elís Björgvinsson varði 15 skot fyrir KA og var með 34,9% vörslu. Hákon Daði Styrmisson og Andri Erlingsson voru með sjö mörk hvor fyrir ÍBV. ÍBV leiddi 20-24 þegar 13 mínútur voru eftir en KA var sterkara á lokakaflanum. KA fer upp í 5. sæti með 24 stig en ÍBV er í 6. sæti með 23. 22. febrúar 2026 kl. 16:49INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Búið að slökkva sinu­eld­inn Fjölmennt lið slökkviliðsmanna barðist við sinueld frá því um þrjú síðdegis til klukkan sjö í kvöld. Eldurinn brann um tíð við Þingaverfi og Guðmundarlund í Kópavogi. Það sem virtist í fyrstu ætla að verða takmarkaður eldur varð að lokum mikið bál sem reyndist erfitt að slökkva. SAMANTEKT 22. febrúar 2026 kl. 16:24ÍÞRÓTTIR Fótbolti Hringa­vit­leysa með VAR og MacAllis­t­er lauk með sigri Liver­pool Jóhann Páll Ástvaldsson MacAllister fagnar marki sínu. IMAGO Liverpool vann dramatískan 0-1 sigur gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Alexis MacAllister skoraði mark á 89. mínútu sem var dæmt af með VAR-myndbandsdómgæslu vegna hendi. Argentínumaðurinn gafst þó ekki upp og skoraði aftur. VAR-myndbandsdómgæslan kom þá aftur til sögunnar til að skoða hvort Virgil van Dijk væri mögulega rangstæður. Að lokum stóð markið og Liverpool-menn gátu fagnað. Liverpool er nú með 45 stig í 6. sæti en Forest er í 17. sæti með 27 stig. Önnur úrslit: Crystal Palace 1 - 0 Wolves Sunderland 1 - 3 Fulham 22. febrúar 2026 kl. 16:09INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Verðum að senda allt sem við eigum í þetta og meira til Slökkviliðið hefur sent nokkra bíla í Heiðmörk til að berjast við sinueld nærri Elliðavatni. Svæðið sem brennur h

Share this article