Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þorgerður: „Hluti af víðtækari veðrun lýðræðis“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.2.2026 | 11:30 Þorgerður: „Hluti af víðtækari veðrun lýðræðis“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki „Fyrir einu ári stóð ég í þessu ráði í fyrsta sinn. Ísland hafði þá nýlega tekið sæti í mannréttindaráðinu og ég leyfði mér að vera vongóð. Vongóð um að þegar ég sneri aftur myndi ég tala um ár sem hefði leitt okkur á braut friðar og framfara. En það er ekki sá heimur sem við stöndum frammi fyrir í dag.“ Svo hófst stefnuræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna sem hún flutti í dag. Í ræðunni sagði hún að þjóðaréttur og mannréttindi sæti árásum víða um heim og að áfram reyni á þær grundvallarreglur sem mannréttindakerfi heimsins byggi á. „Í fjögur ár hefur ólögleg og tilefnislaus innrás Rússlands í Úkraínu valdið gríðarlegum mannlegum þjáningum. Íbúar Úkraínu halda áfram að verja reglubundið alþjóðakerfi fyrir hönd Evrópubúa og við höldum áfram að kalla eftir réttlátum og varanlegum friði sem byggir á þjóðarétti og ábyrgðarskyldu,“ sagði hún. Tilvistarspurning fyrir Ísland Minntist Þorgerður einnig á ástandið á Gasa og mikilvægi þess að mannúðaraðstoð berist á svæðið og stofnanir eins og Sameinuðu þjóðirnar fái að sinna umboði sínu. Þá fordæmdi Þorgerður ákvörðun ísraelskra stjórnvalda að auka og festa í sessi hernaðarviðveru Ísraels á Vesturbakkanum, sem hún segir vera ólöglega. „Við verðum að vinna ötullega að réttlátum og sjálfbærum friði – fyrir Ísrael og Palestínu – sem byggir á tveggja ríkja lausn og sjálfsákvörðunarrétti.“ Þorgerður sagði að alvarleg hnattræn afturför gegn grundvallarmannréttindum væri að eiga sér stað. Rifjaði hún upp að á síðastliðnum árum hafi fimm lönd gert samkynja hjónabönd ólögleg, aðgengi að þjónustuaðilum sem bjóða upp á þungunarrof hafi verið skert og tjáningarfrelsi væri undir þrýstingi. „Þetta gerist ekki í einangrun. Þetta er hluti af víðtækari veðrun lýðræðis, mannlegrar reisnar og reglubundins alþjóðakerfis. Fyrir smáríki eins og Ísland, þar sem öryggi og velmegun byggir á þessum gildum, er þetta ekki óhlutbundið áhyggjuefni. Þetta er tilvistarspurning,“ sagði hún. Ísland ekki ónæmt fyrir afturförinni Þorgerður sagði að ábyrgðarskylda væri grundvallaratriði og að Ísland hefði reynt að sinna henni m.a. með því að kalla eftir sérstökum aukafundi í mannréttindaráðinu um Íran og með því að kalla eftir óháðri rannsókn vegna mannréttindabrota í Afganistan. Hún sagði að þó svo að Ísland stæði meðal fremstu ríkja hvað varðar mannréttindi væri landið ekki ónæmt fyrir þeirri afturför sem á sér stað víða um heim. Hún sagði að Ísland muni áfram standa vörð um algildi og óskiptanleika mannréttinda. „Við munum halda áfram að nota aðild okkar að ráðinu til að efla vernd og framgang mannréttinda fyrir alla.“ Endaði hún ræðuna á því að ítreka að mannréttindi væru hornsteinn friðar og að það væri skylda okkar að byggja upp friðsælan heim. Frétt af mbl.is Fordæma „miskunnarlaust“ ofbeldi stjórnvalda Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fór vel á með Birki og Guardiola Setja í gang vatnsaflsvirkjun við Langadalsá Sameiginlega framboðið nefnt Vinstrið Messi missti stjórn á skapi sínu Setja viðskiptasamning við Bandaríkin á ís Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Það eina sem heldur Pútín á lífi Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Fór vel á með Birki og Guardiola Setja í gang vatnsaflsvirkjun við Langadalsá Sameiginlega framboðið nefnt Vinstrið Messi missti stjórn á skapi sínu Setja viðskiptasamning við Bandaríkin á ís Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið Hægir á byggingu íbúða næstu árin Gullhúðun í nýju frumvarpi Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka

Share this article