Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

KLAK á lista FT yfir ­stuðningsaðila nýsköpunar

  • What: KLAK - Icelandic Startups is recognized as a top startup supporter in Europe by Financial Times, Sifted, and Statista.
  • Impact: Highlights the value of KLAK's services for Icelandic startups compared to international standards.
Read Full Article →

KLAK - Icelandic Startups hefur annað árið í röð verið valið á lista Financial Times, Sifted og Statista, yfir fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu, Europe’s Leading Start-up Hubs, og klifrar upp um þrettán sæti milli ára. Á hverju ári framkvæmir Financial Times, í samstarfi við Statista, greiningu á þúsundum nýsköpunarmiðstöðva í Evrópu en aðeins 180 miðstöðvar hljóta sæti á listanum. „Það er gríðarlegur heiður að vera aftur á þessum lista og sérstaklega að hækka um þrettán sæti á milli ára á sama tíma og samkeppnin eykst. Þetta er skýr staðfesting á gæðum þeirrar þjónustu sem KLAK veitir frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi, og sýnir jafnframt að íslenskt nýsköpunarumhverfi stenst samanburð við það sem best gerist erlendis,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups. Sjá einnig Myndir: Viðskiptahraðall Klak Health Við val á Europe’s Leading Start-up Hubs er meðal annars horft til umsagna fyrrverandi þátttakenda í viðskiptahröðlum, mats sérfræðinga á borð við fjárfesta, frumkvöðla og fræðimanna, ásamt árangri efnilegustu sprotafyrirtækjanna sem hafa farið í gegnum viðkomandi miðstöð. „Að fá viðurkenningu frá jafn virtum alþjóðlegum aðilum og Financial Times, Sifted og Statista styrkir okkur í þeirri trú að sú leið sem við höfum valið - þar sem samvinna, handleiðsla og aðgengi að sérfræðiþekkingu eru í lykilhlutverki - skili raunverulegum áhrifum.“

Share this article