Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrvals Útsýnar, segir að Íslendingar séu farnir að panta ferðir erlendis með mun meiri fyrirvara en áður. Ferðaskrifstofan hefur nú þegar opnað fyrir sólarlandaferðir fyrir næstu jól og er einnig að undirbúa skíðaveturinn 2027. Hún segir í samtali við Viðskiptablaðið að þróunin tengist breyttu ferðamynstri en ferðaskrifstofan hefur séð mikla aukningu í ferðalögum stórfjölskyldna. „Við erum að sjá mikla aukningu í ferðum stórfjölskyldna þar sem jafnvel afi og amma eru að koma með líka. Fólk veit þá að það þarf að bóka mun fyrr til að tryggja að allir nái sama flugi og gistingu því það fyllist fljótt í þessar vinsælu gistingar.“ Sjá einnig „Fólk er að bóka á miðnætti fyrir morgunflugið“ Þórunn segir að veðurfar gæti einnig spilað þátt en Íslendingar, og þá sérstaklega íbúar höfuðborgarsvæðisins, hafa undanfarin ár glímt við bæði rigningarmikil sumur og milda vetur. „Það var farið í síðustu skíðaferðina okkar núna á laugardaginn en skíðafólk veit að það er meira öryggi að fara erlendis. Við erum líka með mikið af fastakúnnum sem fara ár eftir ár á sama hótelið og svo munum við fljótlega opna fyrir skíðaferðirnar 2027.“