Innlent | Morgunblaðið | 23.2.2026 | 23:10 „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Slaufur Guðmundur vonar að einn daginn takist honum að krumpa borðana sjálfur og geri slaufu hjálparlaust. Morgunblaðið/Anton Brink Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Það hefði líklega fáum dottið í hug að lögreglumaður í leðurvesti, sem hefur sérhæft sig í leit að týndum börnum í rúman áratug, settist niður og saumaði slaufur á skírnarkjóla eftir pöntunum. Þó aðeins pöntunum úr innsta hring, enda hefur hann í nógu að snúast í aðalstarfi sínu. Hann getur því ekki bætt við sig mörgum verkefnum. Þegar Guðmundur Fylkisson segir fólki frá þessari iðju sinni eru fyrstu viðbrögðin yfirleitt þau sömu. „Fólk lítur á hendurnar á mér,“ segir hann hlæjandi og réttir upp stórar hendurnar. „Þetta er ekki það fyrsta sem fólki dettur í hug. Fólk ímyndar sér að ég sé mótorhjólamaður, þannig að ég eyðilegg dálítið ímyndina með því að segja að ég sé föndrari með borða.“ Honum telst til að hann hafi gert einhverja tugi slaufa, þótt hann hafi ekki nákvæma tölu á þeim. Hann hefur meðal annars gert slaufu á skírnarkjól hjá eigin barnabarni, fyrir systkinabörn, vinnufélaga og fyrir börn nokkurra strokubarna sem hann leitaði að fyrir einhverjum árum. „Þegar ég verð var við að það er að koma einhvers staðar barn læt ég vita að þegar það komi að skírn þætti mér gaman að fá að gera slaufuna, ef þau vilja,“ segir hann og vísar til strokubarnanna. „Sum þiggja það og önnur koma til mín og biðja mig um að gera það.“ Hann telur að slíkar slaufur séu örugglega orðnar tíu talsins. „Meira að segja í einu tilfelli eru komin tvö börn hjá strokubarni og ég gerði fyrir bæði.“ Magga er fyrrverandi tengdasyni sínum innan handar við sauminn. Fær aðstoð með nálina Fyrrverandi tengdamóðir Guðmundar, Margrét Pétursdóttir, sem er á níræðisaldri, kenndi honum að útbúa slaufurnar og er hún honum líka innan handar þegar hann er að vinna pantanir. Hann er nefnilega ekki enn orðinn alveg nógu laginn við að þræða nálina og krumpa borðana saman. Sú gamla vill reyndar ekki meina að Guðmundur sé fyrrverandi tengdasonur hennar, hann hafi eingöngu skilið við dóttur hennar, ekki hana. „Hún hefur gert svona skírnarslaufur í langan tíma, en hún starfaði í blómabúð og í garnbúð. Það er enginn af afkomendum hennar að taka við þessu,“ segir Guðmundur til að útskýra aðeins betur hvernig slaufusaumurinn kom til. Gummi og Magga saman með afraksturinn. „Ég kem yfirleitt við hjá henni á hverjum degi í kaffi og til að lesa Moggann. Það kom einhvern tíma til tals að ég myndi bara læra þetta og það eru komin nokkuð mörg ár síðan. Það varð því úr að Magga myndi kenna mér og hafa umsjón með mér, því ég hef ekki hundsvit á litasamsetningum. Ég næ heldur ekki að þræða nál og tvinna, en hún, sem er á níræðisaldri, gerir það gleraugnalaust.“ Svo eru það vandræðin með að krumpa. „Til að búa til lykkjuna þarf að krumpa saman þegar maður er að sauma. Ég er í bölvuðu brasi með það, þannig að hún krumpar og setur fyrsta sporið, svo fæ ég að halda áfram. Ég sé um að sauma saman. Svo setjum við litlar rósir eða skraut á, og ég sauma það líka,” útskýrir hann. „Þannig að handbragðið ber þess merki að þetta sé ekki alveg nákvæmt samkvæmt fegurðarstöðlum. En það er kannski fegurðin við það, að þetta sé ekki eftir einhverjum stöðlum.“ Hann viðurkennir þó að stundum trufli hinir hefðbundnu fegurðarstaðlar Möggu tengdamömmu, þar sem hún sé töluvert nákvæmari en hann. „Þá fer hún í að bjarga einhverjum millimetrum til eða frá,“ segir hann kíminn. Áskilur sér rétt til að klúðra Guðmundur er að sjálfsögðu með það alveg á hreinu hversu langan borða þarf fyrir hverja slaufu og útskýrir að lengdin þurfi að vera rífleg því alltaf þurfi eitthvað að klippa. „Þá er það kúnstin sem ég gæti klikkað á. Þú notar ekki bleikan þráð á hvíta slaufu, þá myndi þráðurinn sjást. Magga þarf að passa upp á þetta hjá mér.“ Sú gamla situr því alltaf með tengdasyninum fyrrverandi þegar hann saumar slaufurnar. „Ég hef hingað til ekki gert slaufu alveg einn. Hún er algjörlega með verkstjórnina. Svo lendi ég stundum í því að flækja. Það er svolítið bras að koma tvinnanum í gegn,“ viðurkennir hann „Einn daginn mun ég kannski þurfa að gera þetta einn, eða kannski verður það dagurinn sem ég segi nei.“ Það er ljóst að töluverðar pælingar liggja að baki slaufunum hjá Guðmundi, bæði hvað varðar litasamsetningu og heildarútlit. Og hann hefur lært ýmislegt af Möggu í þeim efnum. „Ég áskil mér samt allan rétt til að klúðra ef ég þarf að gera þetta sjálfur frá grunni. Ég hef stundum komið með einhverja borða til Möggu og hún segir að þeir passi ekki saman. Og ég hlýði því. Hún er með áratuga reynslu en ég er bara lærlingur.“ Guðmundur á þrjár dætur og hefur ekki tekist að vekja áhuga þeirra á að útbúa slaufur. Þá á tengdamóðir hans tvær dætur, sem ekki hafa haft áhuga. „Ég sit því uppi með þetta. Það lá beinast við að ég tæki við þessu,“ segir hann og skellir upp úr. „Ég vona það að einn daginn takist mér að krumpa sjálfur. Það er dálítil kúnst að krumpa svona borða saman,“ bætir hann við. „Ég sé samt ekki fyrir mér að þetta sé eitthvað sem ég muni halla mér að þegar ég fer á eftirlaun.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Vonn: Hann bjargaði mér Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki Lovísa leiðir lista Viðreisnar Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Sýnir hvað það þarf lítið til „Við þurfum að fara í meiri vinnu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Nýjast á mbl.is » „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Vonn: Hann bjargaði mér Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki Lovísa leiðir lista Viðreisnar Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Mest lesið Í gær Í vikunni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat