Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lovísa Oktovía leiðir lista Viðreisnar á Akureyri

Read Full Article →

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, stjórnmálafræðingur og varaþingmaður, skipar fyrsta sæti á lista Viðreisnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Félagsfundur Viðreisnar á Akureyri staðfesti tillögu uppstillinganefndar um röðun á lista í kvöld. Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri Giljaskóla, verður í öðru sæti og Þóroddur Ingvarsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir, í því þriðja. Í fjórða sæti verður Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri menningarmála hjá Akureyrarbæ. Skýr sýn um hvernig Akureyri eigi að þróast „Viðreisn mun setja fókus á þjónustu við íbúa, með sérstaka áherslu á börn og skólamál,“ segir Lovísa Oktovía í tilkynningu. „Við þurfum fjölbreyttari úrræði fyrir börn, bæði á skólatíma og utan. Það þarf líka að auka stuðning við okkar góða fagfólk sem vinnur með börnum. Hvað varðar samfélagið í heild, þá horfir Viðreisn á það að stíga inn í bæjarstjórn, í fyrsta sinn, með skýra sýn um hvernig Akureyri á að þróast. Við viljum að aðgengi íbúa að mikilvægri þjónustu sé í forgrunni. Við horfum líka mjög til nýrrar borgarstefnu um það hvernig umhverfið á að vera fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti. Við viljum stuðla að samfélagi, þar sem vel er tekið utan um fólk með mismunandi þarfir og væntingar til lífsins,“ segir Lovísa Oktovía.

Share this article