Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Útflutningsverðmæti sjávarafurða 359 milljarðar 2025

Read Full Article →

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam um 359 milljörðum króna á árinu 2025, samkvæmt niðurstöðum Radarsins, vefrits Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Greiningin byggist á gögnum frá Hagstofu Íslands og Seðlabanka Íslands. Um er að ræða tæplega 4% aukning í krónum talið frá fyrra ári. Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði um 4½% sterkara á árinu 2025 en árið 2024, var aukningin nokkuð meiri í erlendri mynt, eða rúm 8%. Þorskur og ýsa vega þungt Útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða nam rúmlega 253 milljörðum króna á árinu 2025 og jókst um rúm 13% á föstu gengi milli ára. Aukninguna má að langstærstum hluta rekja til tveggja fyrirferðamestu fisktegundanna, þorsks og ýsu. Útflutningsverðmæti þorskafurða nam um 155 milljörðum króna, sem er 13% aukning á föstu gengi milli ára. Mest var aukningin í sjófrystum flökum (38%), landfrystum flökum (19%) og söltuðum afurðum (17%). Á sama tíma dróst útflutt magn saman um 2%, sem sýnir að verðhækkanir lágu að baki aukningunni. Útflutningsverðmæti ýsuafurða nam tæplega 42 milljörðum króna og jókst um 27% á föstu gengi milli ára. Mest var aukningin í sjófrystum flökum (59%), landfrystum flökum (16%) og ferskum flökum (9%). Afurðaverðshækkanir gegndu jafnframt meginhlutverki í aukningunni, líkt og hjá þorski, enda dróst útflutt magn saman um 4%. Af öðrum tegundum má nefna að verðmæti ufsa jókst um rúm 12% á föstu gengi og karfa um 10%. Á móti dróst útflutningsverðmæti grálúðu saman um rúm 5%. Makríll fyrirferðarmikill Útflutningsverðmæti uppsjávarafurða nam rúmlega 89 milljörðum króna á árinu 2025 og stóð nánast í stað á milli ára. Af uppsjávartegundum bar hæst veruleg aukning í útflutningsverðmæti makrílafurða, sem jókst um 47% á föstu gengi milli ára. Á sama tíma jókst útflutt magn um fimmtung og er því ljóst að afurðaverðshækkanir hafi gegnt veigamiklu hlutverki, líkt og hjá þorski og ýsu. Einnig varð umtalsverð aukning í útflutningsverðmæti loðnuafurða, eða um 28% á föstu gengi milli ára. Í því samhengi ber að hafa í huga að loðnubrestur var árið 2024 og aflamark 2025 takmarkað, þannig að aukningin endurspeglar að hluta lágan samanburðargrunn. Á hinn bóginn dróst útflutningsverðmæti síldarafurða saman um 11% og kolmunna um 12%. Rétt er þó að hafa í huga að tegundaskipting uppsjávarafurða í gögnum um útflutning er ekki fullkomlega nákvæm, þar sem talsverður hluti aflans fer í framleiðslu á mjöli og lýsi. Slík framleiðsla byggist oft á blöndu uppsjávartegunda og er útflutningur þá ýmist skráður undir tilteknar uppsjávartegundir eða almennari tollskrárflokka. Verðhækkanir í kjölfar skerðinga á aflaheimildum Ótal þættir hafa áhrif á útflutningsverðmæti sjávarafurða frá einu ári til annars. Af ofangreindu má vera ljóst að á árinu 2025 bar einna hæst til tíðinda umtalsverð hækkun á afurðaverði á erlendum mörkuðum. Þá hækkun má meðal annars rekja til aflaskerðingar á Barentshafi og komu áhrifin glögglega fram í verði þorsk- og ýsuafurða. Jafnframt hefur umtalsverð skerðing verið á aflaheimildum makríls undanfarin ár og fyrir árið 2026 var hún sérstaklega mikil. Ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) fyrir árið 2026 fól í sér um 70% lækkun á heildarafla makríls, þar sem hrygningarstofninn var kominn undir varúðarmörk. Slíkur samdráttur í framboði, bæði vegna fyrri skerðinga og boðaðrar lækkunar fyrir árið 2026, ýtti undir umtalsverðar verðhækkanir. Vissulega er þróunin á útflutningsverðmæti ekki algildur mælikvarði á stöðu sjávarútvegs og áhrif hans heima fyrir. Verðhækkanir ársins byggjast að stærstum hluta á skerðingu aflaheimilda, sem á sama tíma gerir fyrirtækjum erfiðara um vik að tryggja nægt hráefni til að halda vinnslu gangandi og tryggja heilsársstörf. Hærra verð endurspeglar í þessu tilviki fyrst og fremst samdrátt í framboði fremur en aukinn styrk eða vöxt greinarinnar. Raunverulegur ávinningur af sjávarútvegi felst í stöðugri verðmætasköpun, atvinnu og fjárfestingu hér á landi. Greinin byggist á gögnum Mælaborðs Radarsins , sem nýlega hefur verið uppfært. Þar er einnig ítarleg sundurliðun eftir tegundum, afurðaflokkum og mörkuðum.

Share this article