Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stærði sig af viðsnúningi í efnahag og harmaði tolladóm

Read Full Article →

Ræða Donald Trumps Bandaríkjaforseta hófst á yfirferð hans um stöðu efnahagsmála í Bandaríkjunum og hann sagði viðsnúning hafa orðið í efnahagsmálum síðan ríkisstjórn hans tók við. Bensínverð hefði lækkað, verð á eggjum sömuleiðis og verðbólga væri loksins á niðurleið eftir skelfilega hagstjórn síðustu ríkisstjórnar. Bandaríkjaforseti sagði óheppilegt að Hæstiréttur Bandaríkjanna hefði dæmt tolla hans ólöglega nýverið. Hann bætti þó við að þjóðirnar sem hefðu samþykkt tollana vilji standa við samninginn, þar sem nýr samningur gæti verið enn verri fyrir þjóðirnar. Trump krafðist þess að demókratar myndu samþykkja ný kosningalög, en þau gera m.a. ráð fyrir því að allir kjósendur þurfi að sýna skilríki og sanna ríkisborgararétt sinn til að geta kosið. Trump fullyrti að Íranar væru að þróa kjarnorkuflaugar sem næðu til Bandaríkjanna en sagðist vilja leysa málin með Íran með diplómatískum leiðum. Hann sagði að stefna sín væri friður með styrk, og fagnaði því að Nicholas Maduro, forseti Venesúela, hefði verið handtekinn í síðasta mánuði. Ólöglegir innflytjendur og afbrot þeirra Trump var tíðrætt um ólöglega innflytjendur í ræðu sinni. Hann taldi upp fjölda árása og morða þar sem innflytjendur voru gerendur. Þolendur og aðstandendur þeirra voru meðal gesta í þingsalnum. Hann gagnrýndi sérstaklega samfélag sómalskra innflytjenda í Bandaríkjunum og tengdi innflytjendur af sómölskum uppruna við spillingu og glæpi og kallaði þá sjóræningja. Þessum ummælum hans var harðlega mótmælt af Ilhan Omar úr þingsalnum en hún er þingmaður demókrata í fulltrúadeildinni frá Minnesota og af sómölskum uppruna. Hvunndagshetjum hrósað Það vakti athygli að meðal gesta voru fjölmargir hermenn, hvunndagshetjur eða aðstandendur þeirra, sem var hrósað fyrir vel unnin störf eða hetjudáðir. Þá var karlalandsliðið í íshokkí meðal gesta, en liðið vann nýverið gull á vetrarólympíuleikunum. Trump sló eigin met í ræðulengdinni, og var ræða hans tæpar tvær klukkustundir í nótt. Demókratar ekki hrifnir Abigail Spanberger, fyrsti kvenkyns ríkisstjóri Virginíu, var fulltrúi demókrata og veitti andsvar við ræðu Trumps. Hún gagnrýndi hann fyrir efnahagsmálin og sagði hann lygara og að ríkisstjórn hans væri spillt, en þessi ummæli eru áherslur demókrata í aðdraganda þingkosninganna sem fram fara í nóvember. Spanberger sagði Trump ekki bjóða neinar raunverulegar lausnir við þeim vandamálum sem þjóðin stæði frammi fyrir. Demókratar voru sýnilega minna hrifnir af ræðu Trumps en Repúblikanar í salnum. Þá voru um 30 þingmenn Demókrata sem höfðu lýst því yfir að þeir myndu ekki vera viðstaddir ræðu Bandaríkjaforseta.

Share this article