Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bjóðast til að kaupa minni­hluta­eig­endur út

Read Full Article →

Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til endurkaupa á allt að 48 milljónum hluta eða sem nemur um 0,2% af útgefnu hlutafé bankans. Með endurkaupunum er minnihlutaeigendum boðið að selja hluti sína í bankanum. Þeim gefst kostur á að selja hluti sína frá og með 2. mars til og með 13. mars næstkomandi, samkvæmt tilkynningu Landsbankans. Ríkið á 99,8% af útistandandi hlutafé Landsbankans, þegar leiðrétt er fyrir eigin hlutum bankans. Aðrir hluthafar, sem eru 818 talsins, eiga 0,2% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn býður hluthöfum að selja á genginu 14,56 krónur á hlut sem er í samræmi við það eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans sem nam 343,8 milljörðum króna í loks síðasta árs. Gengið endurspeglar því V/I-hlutfallið 1 en til samanburðar nemur sama hlutfall 1,25 hjá Arion banka og 1,08 hjá Íslandsbanka. Sjá einnig 19 milljarða arður og sér­stök arð­greiðsla til skoðunar Tryggvi Pálsson, þáverandi formaður Bankasýslu ríkisins, sem hélt áður utan um hlut ríkisins í bankanum, sagði í Dagmálum í apríl 2024 að Bankasýslan hefði átt í samtali við fjármálaráðuneytið um hvort skynsamlegt væri að innleysa hlutafé minnihlutaeigenda, m.a. til þess að auðvelda arðgreiðslur í öðru formi en reiðufé, t.d. listaverka og húsnæðis. Auk þess yrði það heppilegra ef til söluferlis á Landsbankanum kæmi að ríkið væri 100% eigandi bankans. Að mestu starfsmenn Flestir hluthafar bankans störfuðu hjá bankanum árið 2013 þegar Landsbankinn afhenti starfsmönnum sem höfðu verið í fullu starfi í fjögur ár samtals um 0,5% hlut í bankanum, samkvæmt samkomulagi frá árinu 2009 um fjárhagsuppgjör milli Landsbankans og þrotabús Landsbanka Íslands (LBI). Fjöldi hluthafa Landsbankans í lok árs 2013 var 1.394. Sjá einnig Starfsmenn Landsbankans fá afhent bréf í bankanum Á árinu 2015 fjölgaði hluthöfum úr 1.403 í 1.835 þegar Landsbankinn tók yfir í sitt hvorum samrunanum allar eignir, skuldir og starfsemi Sparisjóðs Vestmannaeyja og Sparisjóðs Norðurlands. Greiðslan til stofnfjáreigenda þessara sparisjóða var í formi hlutabréfa í Landsbankanum. Þannig eru Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin í dag næst stærstu hluthafar Landsbankans á eftir ríkinu með 0,01% hlut hvor um sig. Hluthöfum fækkaði úr 1.835 í 931 á árunum 2016-2017 þegar bankinn bauðst til að kaupa eigin hluti í bankanum til að gefa hluthöfum tækifæri á að selja hluti sína. Bankinn hefur í kjölfarið gefið hluthöfum með reglubundnum hætti kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar og mars 2024.

Share this article