Innlent | mbl | 25.2.2026 | 13:12 „Auðvitað er þessi staða ekki góð“ Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að verið sé að skoða feril málsins hjá ráðuneytinu. mbl.is/Anton Brink Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir unnið að því í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið að finna leið til að fjármagna verkefnið Ævintýrabúðir og Vinahópar Reykjadals sem Gló Styrktarfélag hefur haldið úti síðustu ár. Greint var frá því á mbl.is í gær að hætta þyrfti við verkefnið í sumar því ekki hefði fengist styrkur frá ráðuneytunum, líkt og síðustu ár. Erindi hefði verið sent í október og óskað eftir styrkveitingu en að engin svör hefðu fengist frá hvorugu ráðneytinu, þrátt fyrir áminningar. Þá sagði Jórunn Edda Óskarsdóttir, stjórnarformaður Glóar stuðningsfélags, í samtali við Morgunblaðið í dag að tíminn væri á þrotum til að fá húsnæði, ráða fólk og skipuleggja sumarbúðir fyrir 250 börn. Frétt af mbl.is Loka sumarbúðum fyrir fötluð börn vegna fjárskorts Heyrði fyrst af málinu í gær Í samtali við mbl.is segist Ragnar fyrst hafa heyrt af málinu þegar hann las fréttina á vefnum í gær. Þá hafi hann farið strax í að láta kanna allan feril málsins hjá ráðneytinu. Reynt sé að leita allra leiða til að farsæl lausn fáist fyrir alla aðila. „Af því þetta hafði ekki komið inn á mitt borð og ég veit ekki til þess að þetta hafi komið inn á borð ráðherra sjálfs. Ég man ekki eftir að það hafi komið styrkbeiðni til fjárlaganefndar, þegar ég gegndi formennsku þar, og við vorum að undirbúa síðustu fjárlög.“ Hann segist ekki hafa skýringar á því eins og er af hverju málið hafi ekki komið inn á borð ráðherra. Þá viti hann ekki hvernig styrkbeiðninni var háttað. „Við erum að skoða málið og leita lausna. Við erum í góðu sambandi við mennta- og barnamálaráðuneytið til þess að reyna að finna lausn á þessu,“ segir Ragnar. Hann hafi strax sett sig í samband við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í gær. „Nú eru okkar ráðuneytisstjórar og okkar öfluga starfsfólk að fara yfir feril málsins og reyna að finna lausnir. Það er staða málsins og vonandi tekst að leysa úr þessu.“ Frá lokaballi í Reykjadal. mbl.is/Ómar Óskarsson Frétt af mbl.is „Nú er tíminn á þrotum“ Veit ekki hvernig farið verður að Hann bindur því vonir við að hægt verði að veita fé í bæði verkefnin sem um ræðir. „Já, ég get bara ekki sagt til um það akkúrat á þessari mínútu hversu mikið eða hvernig við förum að því. Við erum allavega að reyna og það er allt komið á fullt í báðum ráðuneytum til þess að reyna að finna lausnir.“ Gló styrktarfélag hefur í sex ár rekið verkefnin sem hófust í Covid-faraldrinum, að frumkvæði stjórnvalda, og var ætlað að rjúfa félagslega einangrun ungs fatlaðs fólks og styðja fjölskyldur á erfiðum tímum. Annars vegar er um að ræða Ævintýrabúðir fyrir börn og unglinga með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu og/eða andlegum áskorunum, sem styrktar hafa verið af mennta- og barnamálaráðuneytinu, og hins vegar svokallaða Vinahópa Reykjadals, sem er sumardvöl og tómstundaúrræði fyrir ungt fatlað fólk á aldrinum 20–30 ára, styrkt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Ragnar hefur ekki verið í sambandi við forsvarsmenn Glóar styrktarfélags en segist hafa verið í sambandi við Þroskahjálp og fleiri samtök sem standa í framlínu í stuðningi við fatlað fólk sem lýst hafi yfir áhyggjum af stöðunni. Hann taki það mjög alvarlega. „Ég hef falið mínum ráðuneytisstjóra, samhliða því að fara yfir allan feril málsins, að hafa samband við forsvarsmenn verkefnisins og sjá hvað við getum gert og hvort það sé hægt að bregðast við.“ Vildi að hann hefði vitað af málinu Spurður hvort það sé ekki bagalegt að viðbrögð við styrkbeiðninni séu að koma svona seint, þegar stjórnarformaður Glóar hafi lýst því yfir að það sé í raun orðið of seint núna að bregðast við fyrir sumarið, játar hann því. „Auðvitað er þessi staða ekki góð. Ég vildi óska þess að ég hefði haft vitneskju um málið á fyrri stigum til að geta brugðist fyrr við. En við skulum sjá hvað dagurinn í dag ber í skauti sér. Það er auðvitað eitthvað sem þarf að gerast í samtali milli ráðuneytanna og forsvarsmanna verkefnisins, hvort hægt sé að bregðast við strax eða hvort við reynum að koma þessu í betri farveg til framtíðar. Það er vinna sem mun fara fram í dag og líklega á morgun,“ segir Ragnar sem vonast til að farsæl lausn finnist fyrir alla aðila. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þorgerður Katrín fordæmir aðgerðir Ísraela „Auðvitað er þessi staða ekki góð“ Myndskeið: Landsliðskonan fór á kostum Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Nýr safnstjóri Louvre skipaður Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Tekið á Akkilesar-hæl Rússahers Mest lesið Í gær Í vikunni Fangavörður grunaður um brot í starfi Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Útskrifaður af sjúkrahúsi Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast „Hugsanlegt að það snjói talsvert“ Vegagerðin varar við vetrarfærð Sjö gámar fara frá Íslandi í vikunni Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Þorgerður Katrín fordæmir aðgerðir Ísraela „Auðvitað er þessi staða ekki góð“ Myndskeið: Landsliðskonan fór á kostum Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Nýr safnstjóri Louvre skipaður Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fangavörður grunaður um brot í starfi Útskrifaður af sjúkrahúsi Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð Mest lesið Í gær Í vikunni Fangavörður grunaður um brot í starfi Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Útskrifaður af sjúkrahúsi Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast „Hugsanlegt að það snjói talsvert“ Vegagerðin varar við vetrarfærð Sjö gámar fara frá Íslandi í vikunni Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu