Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Píratar næðu á þing en Flokkur fólksins dytti út

Read Full Article →

Píratar mælast á þingi í fyrsta skipti síðan fyrir kosningar í nýjustu könnun Maskínu. Flokkur fólksins mælist þriðja mánuðinn í röð minni en svo að tryggt væri að flokkurinn héldi sér á þingi. Einna mest tíðindi kunna þó að vera í því fólgin að fylgi Miðflokksins minnkar milli kannana í fyrsta skipti síðan í september. Það hafði rúmlega tvöfaldast, farið úr 9,1 prósenti í 22,2 prósent en mælist nú 19,0 prósent. Samfylkingin er sem fyrr sá flokkur sem flestir segjast myndu kjósa. Hann mælist með 27,2 prósenta fylgi, svipað og fyrir mánuði. Mest fór fylgi Samfylkingarinnar í 31,9 prósent í september. Sjálfstæðisflokkurinn fær sína bestu mælingu síðan í september, mælist með 16,2% en var með 13,5 prósent fyrir mánuði. Viðreisn er á svipuðum slóðum og undanfarið með 13,4 prósenta fylgi. Aðrir flokkar mælast allir vel undir tíu prósentum. Framsóknarflokkur fengi 7,0 prósent, Píratar fengju 5,2 prósent og Flokkur fólksins 4,8 prósent. 4,1 prósent segjast myndu kjósa Vinstri græn og 3,1 prósent Sósíalista. Samkvæmt þessu myndu 45 prósent kjósa stjórnarflokkana og 42 prósent stjórnarandstöðuflokkana á þingi. Tólf prósent myndu kjósa flokka sem náðu ekki á þing í kosningunum 2024. Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu 6. til 12. febrúar og 20. til 24. febrúar. 1.993 tóku afstöðu.

Share this article