Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tilkynnt um eld í rafmagnstöflu í Vesturbænum Guðmundur Atli Hlynsson Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eld í rafmagnstöflu í Vesturbænum um hálf átta í kvöld. Fjórir dælubílar voru sendir á vettvang á Nýlendugötu. Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir atvikið minni háttar. Allir dælubílar voru afturkallaðir, að undanskildum þeim fyrsta sem kom á vettvang. Mynd er úr safni. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 27 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Haukar í úrslitaleikinn og geta varið titilinn Haukar unnu Fram í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta. Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar og unnu 32-29 eftir jafnan leik. Í kvöld kemur í ljós hverjir mótherjarnir verða. Fyrir 38 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Bílslys leiddi til vatnsskorts á æfingu Veitna Sviðsmynd sem gerði ráð fyrir að hundrað lítrar af díselolíu rynnu út í hraun leiddi í ljós að slíkt gæti valdið neysluvatnsskorti um margra vikna skeið. Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þjófur sló starfsmann verslunar í miðbænum Mist Þormóðsdóttir Grönvold Starfsmaður verslunar í miðbænum varð fyrir líkamsárás í dag þegar þjófur reyndi að stela vörum úr versluninni. Í tilkynningu lögreglu segir að meintur þjófur hafi brugðist illa við þegar upp komst um athæfi hans og hafi hann í kjölfarið slegið starfsmanninn. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. Þá hafði lögregla einnig afskipti af viðskiptavinum verslunar sem reyndu að greiða fyrir kaup sín með fölsuðum seðlum. Auk þessa barst tilkynning um rútu sem farið hafði utan vegar. Rúmlega fimmtíu voru í rútunni en engin slys urðu á fólki. Starfsmaður verslunar í miðbænum varð fyrir líkamsárás þegar upp komst um þjófnað í dag. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist Ráðuneyti vildi ekki sýningarrétt að óperu sem hafði ekki verið frumsýnd Íslenska óperan bauð fram sýningarrétt að ósaminni óperu um Agnesi Magnúsdóttur væri menningarráðuneytið reiðubúið að leggja til á annan tug milljóna í veglega lokatónleika sem hún vildi halda. Samtal er hafið um örlög Agnesar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Vikur eða mánuðir í afgerandi breytingar á bráðamóttöku Aðgerðir heilbrigðisráðuneytisins til að bæta stöðuna á Landspítalanum skila ekki afgerandi breytingum fyrr en eftir vikur eða mánuði. Vonast er til þess að hægt verði að opna 130 hjúkrunarrými á næstu mánuðum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Larry Summers hættur hjá Harvard vegna Epstein-skjala Larry Summers hefur sagt upp störfum hjá Harvard. Hann er þegar hættur kennslu en lætur formlega af störfum við lok misserisins. Epstein-skjölin sýndu náið samband hans við Jeffrey Epstein. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál „Ekki tilbúin til að ganga inn í Evrópusambandið á hvaða forsendum sem er“ Kristrún Frostadóttir segir að aðildarviðræður séu ekki hafnar og hvorki hún né þjóðin séu tilbúin að ganga í ESB á hvaða forsendum sem er. Augljóst sé að áhugi sé á Íslandi innan ESB. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Mínútu þögn vegna fallinna mexíkóskra hermanna Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Mexíkó í vináttuleik í kvöld. Mínútu þögn verður fyrir leik til minningar mexíkóskra hermanna sem féllu í átökum við glæpagengi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Með sektarkennd yfir að vera hólpin „Þjóð mín er þrautseig og við erum sterk,“ segir Iryna Hordiienko, sem flúði til Íslands frá Úkraínu fyrir fjórum árum. Hún starfar hjá Rauða krossinum og segist hafa ákveðið að leggja sig alla fram við að skapa sér gott líf á Íslandi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur „Færðin er að gera okkur óleik“ Töluverðar seinkanir eru hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu vegna ofankomunnar. Framkvæmdastjóri segir færðina gera þeim óleik. Á sumum leiðum geti seinkunin verið allt upp undir fjörutíu mínútur. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Stjórnin sprungin í Færeyjum – kosið strax í mars Lögmaður Færeyja hefur boðað til kosninga í landinu 26. mars. Þær hefðu annars átt að fara fram í desember. Ástæðan er ósamkomulag innan ríkisstjórnarinnar um samgöngu- og eftirlaunamál. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Kristrún lagði áherslu á sérkenni Íslands gagnvart ESB – Tusk gaf henni Prins Póló Kristrún Frostadóttir fundaði með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands í dag. Þau ræddu um framtíð Íslands í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Tusk gaf Kristrúnu Prins Póló í kveðjuskyni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Marius Høiby: „Ég hef aldrei slegið nokkurn mann“ Marius Høiby neitar að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi eins og hún heldur fram. Hann viðurkennir þó að eiga í vandræðum með skap sitt. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Framlengja gæsluvarðhald í Kársnesmálinu Mist Þormóðsdóttir Grönvold Gæsluvarðhald yfir manni vegna andláts karlmanns í heimahúsi í Kársnesi í Kópavogi í nóvember hefur verið framlengt til 18. mars. Í tilkynningu lögreglu segir að varðhaldið hafi verið framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn, sem er grískur, hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan í desember. Hann var handtekinn eftir að félagi hans fannst látinn með stunguáverka. Varðhaldið hefur verið framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Syndafall: „Hún er bara svo snilldarlega fléttuð“ Í nýjustu spennusögu Yrsu Sigurðardóttur, Syndafalli, fléttast saman þrír ólíkir söguþræðir sem gagnrýnendur Kiljunnar furða sig yfir hvernig henni hafi tekist að tengja saman. Bókin sé „dæmigerð Yrsa“ en þó ekki jafn óhugnanleg og oft áður. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ástarsvikarar féfletta Íslendinga á netinu: Töpuðu 70 milljónum í fyrra Ástarsvikarar á netinu höfðu 70 milljónir króna af Íslendingum í fyrra. Aðstoðaryfirlögregluþjónn fjármunabrotadeildar segir líklegt að slík brot færist í aukana hér á landi. Þrjú slík mál hafa komið upp það sem af er þessu ári. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Fundur Kristrúnar Frostadóttur og Donalds Tusks Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hittir starfsbróður sinn Donald Tusk í Varsjá. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Tólf var sagt upp hjá Sjúkratryggingum Íslands í dag. Uppsagnirnar eru liður í að bæta starfsemi stofnunarinnar, segir í tilkynningu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Langþreyttir Rússar vilja samt sigur Um þriðjungur Rússa kveðst hafa orðið fyrir beinum áhrifum af stríðinu í Úkraínu, segir yfirmaður EBU í Moskvu. Mannfallið sé áþreifanlegt og almenningur farinn að finna fyrir efnahagslegum afleiðingum stríðsrekstursins. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður „Menn keyri bara eftir aðstæðum og fari varlega“ Gul veðurviðvörun vegna talsverðrar eða mikillar snjókomu tók gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan tvö og gildir til sjö í kvöld. Viðbúið er að veðrið geti valdið umferðartruflunum, en það á að ganga niður í kvöld. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á höfuðborgarsvæðinu fram yfir kvöldmat vegna mikillar snjókomu. Viðbúið er að hún geti truflað umferð. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Píratar næðu á þing en Flokkur fólksins dytti út Fylgi Miðflokksins minnkar milli kannana en fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst í nýrri könnun Maskínu. Píratar myndu ná inn á þing en Flokkur fólksins detta út. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Hafa áhyggjur af brunavörnum á yfirfullri bráðamóttöku Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur með Landspítalanum við að bæta brunavarnir á yfirfullri bráðamóttöku. Veitingahús fengi ekki að vera í rekstri undir sömu kringumstæðum, segir sviðsstjóri forvarnarsviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gæti orðið blint í skafrenningi og mikilli snjókomu Færð gæti spillst á Vesturlandi síðdegis og akstursskilyrði gætu orðið krefjandi á nokkrum stöðum. Úrkomubakki gengur inn yfir vestanvert landið upp úr hádegi. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Þegar hún hló: Ástarsagan besti þáttur glæpasögunnar Gagnrýnendur Kiljunnar eru sammála um að Þegar hún hló sé kraftmikil glæpasaga og þægileg lesning en úrlausn hennar ekki nógu sterk. Kolbrún segir ástarsöguna það sem sitji eftir. „Hún er svo falleg. Hún er eitthvað svo rétt.“ Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Þunnt og þrúgandi loft í Queretaro fyrir leik Íslands Það er óhætt að segja að íslenska karlalandsliðið í fótbolta sé að fara inn í verkefni við skrýtnar aðstæður þegar liðið mætir Mexíkó í nótt. Ofan á það bætist svo við að leikurinn er spilaður í tæplega 2000 metrum yfir sjávarmáli. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump fór með staðreyndarvillur og stóð í stappi við Demókrata Stefnuræða Donalds Trump forseta Bandaríkjanna í nótt var uppfull af staðreyndarvillum um efnahagsmál, landamæri og kosningar. Stemningin varð á tímabili spennuþrungin, einkum þegar rætt var um innflytjendamál. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía 10% opinberra starfsmanna verður sagt upp Þorgils Jónsson Ilie Bolojan tekur ríkisreksturinn í Rúmeníu föstum tökum. EPA / CLEMENS BILAN Ilie Bolojan forsætisráðherra Rúmeníu tilkynnti í dag að 10% allra opinberra starfsmanna yrði sagt upp störfum fyrir lok árs. Þetta er hluti af hagræðingaraðgerðum stjórnvalda. Fjárlagahalli er hvergi meiri í Evrópusambandinu en einmitt í Rúmeníu. Bolojan tók við embætti síðasta sumar og hefur ráðist í ýmiss konar aðgerðir, meðal annars hækkað skatta, að því er AFP segir frá. Uppsagnirnar munu taka til um 13 þúsund manns, allt frá efstu lögum embættismannakerfisins niður í lögreglu og heilbrigðisstarfsfólk. Bolojan hefur sagst vilja snúa landinu frá neyslu og hallarekstri yfir í fjárfestingu, framle