Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Verðbólga stendur í stað

Read Full Article →

Verðbólga var 5,2 prósent í febrúar, annan mánuðinn í röð. Hún fór í síðasta mánuði yfir fimm prósent og hafði ekki verið meiri síðan í september 2024. Verðbólgan var 4,5 prósent í desember og 3,7 prósent í nóvember. Ef húsnæðisverði væri haldið fyrir utan mælinguna væri verðbólgan 4,5 prósent. Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,1 prósent. Sú hækkun stendur undir fimmtungi af hækkun neysluverðsvísitölunnar milli mánaða. Verð á húsbúnaði, heimilistækjum og tengdum vörum hækkaði um 5,4 prósent og hafði sambærileg áhrif á vísitöluna. Matur og óáfengir drykkir hækkuðu um 0,9 prósent, vatnsveitur, sorphirða og fráveita um 4,3 prósent. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 6,8 prósent en dísilverð lækkaði um 5,6 prósent og bensín um 6,0 prósent. Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article