- What: Þorsteinn Pétur Guðjónsson stepped down as CEO of Deloitte Iceland.
- Impact: The board is working with a new CEO, and he's thanked for his contributions.
Þorsteinn Pétur Guðjónsson og stjórn Deloitte á Íslandi hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem forstjóri félagsins, að því er kemur fram í tilkynningu. Unnið er að ráðningu nýs forstjóra og mun Signý Magnúsdóttir áfram gegna stöðu forstjóra tímabundið meðan á ráðningarferlinu stendur. „Að undangengnu samtali Þorsteins og stjórnar hefur verið ákveðið að leiðir skilji og að Deloitte á Íslandi haldi áfram vegferð sinni undir nýrri forystu. Stjórn þakkar Þorsteini kærlega fyrir hans framlag til félagsins í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni,“ er haft eftir stjórn fyrirtækisins. Ákvörðunin fylgir í kjölfar þess að Þorsteinn steig til hliðar sem forstjóri Deloitte í janúar eftir að greint var frá því að héraðssaksóknari hefði gefið út ákæru á hendur honum Pétri vegna meints kynferðisbrots á hóteli Rangá í maí 2023. Hann var sýknaður af ákæru í síðustu viku. Sjá einnig Forstjóri Deloitte sýknaður „Eftir að hafa stigið til hliðar vegna dómsmáls sem lauk með fullri sýknu hef ég nýtt tímann til að staldra við og meta næstu skref. Ég hef starfað hjá Deloitte í 26 ár sem er langur tími hjá einu og sama fyrirtæki. Eftir að hafa rætt stöðu mála við mína nánustu fjölskyldu, vini og stjórn Deloitte töldum við rétt að leiðir skildu á þessum tímapunkti,“ segir Þorsteinn Pétur .