Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Átta ára vann ríkis­tryggð bréf fyrir 16 milljónir

  • What: A 14-year-old in England won £100,000 in Premium Bonds.
  • Impact: His parents were surprised by the large win.
Read Full Article →

Átta ára drengur í Kent á Eng­landi, Finl­ey Morgan, hefur unnið 100 þúsund pund (skatt­frjálst) í svo­kölluðum Premium Bonds-sparnaði eftir að eitt bréfanna hans var dregið út í mánaðar­legum út­drætti. For­eldrar drengsins segjast hafa verið orðlausir þegar upp­hæðin kom í ljós. Drengurinn sjálfur átti fyrst að hafa spurt: „Hvað eru mörg núll aftan við þetta?“ Móðir drengsins, Toni Morgan, var á leið með soninn í skólann þegar faðir hennar hringdi og bað hana að at­huga Premium Bonds-reikninginn. Fjöl­skyldan var vön smærri vinningum, oft 25 eða 50 pund, en þegar Toni skráði sig inn kom í ljós að eitt skulda­bréf sonarins hafði skilað 100 þúsund punda vinningi. Á leiðinni í skólann reyndi Fin að átta sig á stærðinni og sagði að „eitt og fimm núll væru tíundi úr milljón“. For­eldrarnir segja að það hafi tekið nokkra daga að átta sig á hvað hafði gerst. Hvað eru Premium Bonds? Premium Bonds eru ríkis­tryggð sparnaðar­leið sem er rekin af National Savings & Invest­ments (NS&I), sem Bretar hafa notað í ára­tugi. Í stað þess að sparnaðurinn beri vexti fara eig­endur í mánaðar­legt happ­drætti: Fyrir hvert pund í Premium Bonds er eitt nú­mer í pottinum og geta eig­endur unnið vinninga frá 25 pundum upp í 1 milljón pund. Vinningar eru skatt­frjálsir. Hægt er að leysa bréfin út hvenær sem er, þannig að þau virka að ein­hverju leyti eins og sveigjan­legur sparnaður, nema að ávöxtunin ræðst al­farið af heppni, ekki föstum vöxtum. Börn geta átt Premium Bonds en reikningurinn er í um­sjón for­eldris eða forráða­manns þar til barnið verður 16 ára. Fjöl­skyldan hafði byggt upp 16 þúsund punda stöðu Í til­felli Fin­leys var heppnin þó ekki til­viljun ein. Afi og amma hans höfðu keypt Premium Bonds fyrir hann þegar hann varð eins árs og bætt við með gjöfum um ára­bil. Heildar­staðan var komin í 16 þúsund pund þegar vinningurinn datt inn. Því fleiri bréf sem fólk á, og því lengur sem það heldur þeim, því meiri verða líkurnar á stórum vinningi. Sam­kvæmt greininni eru líkurnar á að hvert ein­stakt 1 punda bréf vinni í út­drætti um 1 á móti 22 þúsund, og því skiptir fjár­hæðin sem er í bréfum miklu. For­eldrarnir segja vinninginn vera hans For­eldrarnir segja vinninginn vera al­farið eign sonarins en hafa þó sett fyrir­vara við hug­mynd hans um að eyða honum strax. For­eldrarnir segja vinninginn vera eign sonarins en hafa þó dregið úr fyrstu hug­mynd hans um að eyða honum strax. Fin, sem er mjög hrifinn af flug­vélum, sagðist vilja kaupa flug­miða. For­eldrarnir ætla hins vegar að leggja hluta inn á Juni­or ISA, halda hluta í Premium Bonds og skoða langtíma­fjár­festingar, svo peningarnir nýtist síðar til dæmis í háskólanám eða sem út­borgun í húsnæði. „Ávöxtun“ er ekki tryggð en spennan selur Premium Bonds eru vinsæl í Bret­landi ein­mitt vegna þess að þau sam­eina sparnað og „spennu“ happ­drættis. Greinin bendir þó á að þetta er ekki endi­lega besta leiðin til að há­marka ávöxtun þar sem margir vinna aldrei neitt og sparnaðurinn ber ekki vexti. Þeir sem vilja örugga ávöxtun geta fengið hærri vexti á bestu inn­láns­reikningum.

Share this article