Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dómsmálaráðuneytið skoðar kvartanir undan hegðun lögreglustjóra á Vestfjörðum á þorrablóti

Read Full Article →

Kvartað var undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjórans á Vestfjörðum, á þorrablóti Flateyringa – Stútungi – fyrr í mánuðinum. Dómsmálaráðuneytið hefur málið til skoðunar. Vísir sagði frá því í gær að kvartanirnar hefðu verið tvær, önnur vegna kynferðislegrar áreitni og hin vegna þess að hann hefði ráðist líkamlega að manni á blótinu. Kvartað til nefndar um eftirlit með lögreglu Samkvæmt kvörtun sem send var Nefnd um eftirlit með lögreglu (NEL), og fréttastofa hefur undir höndum, sýndi Helgi af sér kynferðislega ágengni og vísaði minnst tvívegis til valds embættis síns. Kvörtunin var framsend til dómsmálaráðherra til þóknanlegrar meðferðar sem æðsta yfirmanns lögreglu í vikunni og ráðuneytið staðfestir að málið sé til skoðunar þar. NEL fjallar um meint refsiverð brot, starfsaðferðir og framkomu lögreglumanna. Þetta átti sér stað utan vinnutíma. Málið heyrir heldur ekki undir ríkislögreglustjóra, þar sem lögreglustjóraembættin heyra ekki undir hann heldur dómsmálaráðherra. Helgi kannast ekki við neitt óeðlilegt við hegðun sína á blótinu Helgi segðist í samtali við fréttastofu ekki kannast við að neitt óeðlilegt hafi átt sér stað á þorrablótinu. Hann hafi sagt álit sitt á ákveðnum manni og dansað við konu sem líkaði ekki hvernig hann dansaði. Hann rekur ekki minni til þess að hafa beitt fyrir sig embætti sínu en segir það geta hafa komið fram í spjalli við hvað hann starfi. Þetta kvöld hafi hann þó ekki verið að störfum heldur úti að skemmta sér.

Share this article