Fish & Chips Lake Mývatn hefur verið valinn besti Fish & Chips staðurinn í heimi á alþjóðlegri verðlaunahátið sem fór fram í London í gær. Fyrirtækið var eitt þriggja í úrslitum keppninnar í alþjóðegum flokki sem besti alþjóðlegi fish and chips staðurinn. Fish & Chips Lake Mývatn opnaði árið 2022 og er ungt fyrirtæki í Mývatnssveit. Fulltrúar fyrirtækisins voru viðstaddir verðlaunaafhendinguna í gær í London. Einn þeirra, Stefán Guðmundsson frá Húsavík, segir í Facebook færslu að svona lagað gerist ekki af sjálfu sér, að baki sé botnlaus vinna með afburðafólki og risastóru markmiði. Þetta sé í fyrsta skipti í 38 ára sögu British Fish & Chips Awards, sem þessi verðlaun rati til Íslands. Í fréttatilkynningu frá Fish & Chips Lake Mývatn segir: „Við erum himinlifandi að Fish and Chips við Mývatn hafi verið útnefndur alþjóðlegur fisk- og frönsku veitingastaður ársins á National Fish and chips Awards 2026. Við þökkum National Federation of Fish Fryers fyrir að gera okkur kleift að taka þátt í keppninni sem þegar er farið að skapa ófyrirséð tækifæri með endalausum möguleikum í framtíðinni. Þessi viðurkenning er okkur mjög mikilvæg því líf okkar hefur verið mótað af fiskveiðum í margar kynslóðir. Verðlaunin eru heiður fyrir allt teymið okkar og þá skuldbindingu okkar að nota eingöngu hágæða íslenskan þorsk sem veiddur er með sjálfbærum hætti, fyrir að veita hraða, vingjarnlega og eftirminnilega þjónustu og sameina með stolti hefðina að baki Fish and Chips og sjálfsmynd okkar sem Íslendinga.“