Innlent | mbl | 26.2.2026 | 13:10 Skrásetningargjaldið úrskurðað lögmætt Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur hafnað kröfu fyrrverandi nemanda um endurgreiðslu skráningargjalda. Þetta kemur fram í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar sem kveðinn var upp 23. nóvember. Jessý Jónsdóttir, nemandinn sem höfðaði málið, óskaði eftir því árið 2021 að háskólaráð skæri úr um hvort skrásetningargjaldið hafi verið réttmætt og hvort innheimta þeirra rúmaðist innan ramma laga um opinbera háskóla. Þá krafðist hún þess að gjaldið yrði endurgreitt að því marki sem það yrði talið ólögmætt, en í október á sama ári komst háskólaráð að þeirri niðurstöðu að gjaldtakan hefði verið lögmæt. Í kjölfarið kærði Jessý niðurstöðu háskólaráðs til áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema sem felldi úrskurð háskólaráðs úr gildi. Í nóvember 2022 hafnaði háskólaráð beiðni Jessýjar að nýju og kærði hún úrskurð háskólaráðs til áfrýjunarnefndar á nýjan leik. Nefndin tekur undir sjónarmið skólans Þá segir að Jessý hafi byggt á því að forsendur og útreikningur á einstaka liðum að baki skrásetningargjaldinu hafi ekki legið fyrir við álagningu þess gjalds. Í málinu liggi fyrir að HÍ hafi ekki tekið saman eða reiknað út raunkostnað með reglulegum hætti. HÍ vísi m.a. til þess að þar sem augljóst sé að raunkostnaður við þjónustu við nemendur sé umfram lögákveðna hámarksfjárhæð skrásetningagjaldsins verði ekki gerðar sömu kröfur um reglulegan samanburð rauntalna við áætlun nema grundvallarbreytingar verði á forsendum. Fyrir liggi að svo sé ekki. Nefndin taki undir sjónarmið HÍ. Í málatilbúnaði HÍ komi fram að rauntölur afmarkaðra kostnaðarliða í viðauka B séu ávallt tiltækar í bókhaldi HÍ og unnt að taka þær saman. Í kjölfar úrskurðar nefndarinnar í máli nr. 4/2022 hafi HÍ farið í rannsókn og greiningu á kostnaðarliðum sem liggja að baki töluliðum í viðauka B. Niðurstaða þeirrar rannsóknar sýni að mati nefndarinnar fram á að raunkostnaður vegna þjónustu við nemendur sem skrásetningargjaldinu er ætlað að mæta sé hærri en fjárhæð skrásetningargjaldsins. Eins og rakið sé í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 4/2022 sé helsta forsenda þess að hægt sé að taka afstöðu til þess hvort að skrásetningargjald HÍ uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til álagningar þjónustugjalda sú að fyrir liggi á hvaða forsendum gjaldið byggir. Í máli þessu liggi fyrir ítarleg áætlun og greining á því hverju sú áætlun byggi, ólíkt því sem var í fyrra máli. Í málatilbúnaði Jessýjar sé vísað til þess að ekki sé hægt að ráðast í slíka rannsókn eftir á. Frétt af mbl.is „Þetta er enginn misskilningur“ Telur það hafa verið skyldu HÍ að fara í slíka rannsókn Nefndin telji það hafa verið skyldu HÍ, með hliðsjón af rannsóknarreglu 10. gr. stjórnarsýslulaga, að fara í slíka rannsókn í kjölfar niðurstöðu nefndarinnar í máli nr. 4/2022. Tölurnar og upplýsingarnar hafi legið fyrir í kerfum skólans og sú vinna sem fram fór í kjölfarið einungis verið til þess að taka saman þessar upplýsingar á grunni aðferðafræði sem HÍ hafi útskýrt með ítarlegum hætti í málinu. Eins og rakið var í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 4/2022 er áskilið að innheimta skráningargjalds vegna þjónustu við nemendur taki mið af þeim kostnaði sem til falli vegna veitingar þjónustunnar og að afmörkun skrásetningargjaldsins byggi á traustum útreikningum. Að mati nefndarinnar eru þessi skilyrði uppfyllt. Frétt af mbl.is Enginn grundvöllur fyrir skrásetningargjaldi Heimilt að innheimta skrásetningargjald Að því er varðar málatilbúnað Jessýjar að reglur um gjaldskrá HÍ vegna þjónustu við nemendur o.fl. og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds hafi ekki verið settar með réttum hætti þá liggi fyrir í málinu að þær hafi verið samþykktar af háskólaráði á fundi 6. apríl 2014 og birtar í B-deild Stjórnartíðinda. Viðaukar við reglurnar hafi verið samþykktir á sama fundi, þ.m.t. viðauki B, og hafi verið aðgengilegir á heimasíðu skólans frá samþykki. Með hliðsjón af framangreindu fellist nefndin ekki á málsástæður Jessýjar að reglurnar hafi ekki verið birtar með réttum hætti. Að því er varðar málsástæður Jessýjar um heimildir HÍ til gjaldtöku af nemendum með innheimtu skrásetningargjalds vísar nefndin til úrskurðar í máli nr. 4/2022 þar sem ítarlega er rakin saga heimilda HÍ til gjaldtöku og fyrirkomulags skrásetningagjalda við skólann. Nefndin hafi þar komist að þeirri niðurstöðu að HÍ hafi heimild til þess að innheimta skrásetningargjald af nemendum við skólann. Með hliðsjón af því telji nefndin ekki efni til að fjalla frekar um þær málsástæður Jessýjar sem snúa að því hvort HÍ sé heimilt að innheimta skrásetningargjald af nemendum við skólann. „Með vísan til framangreinds er það niðurstaða áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema að hafna kröfum kæranda um endurgreiðslu skrásetningargjalds vegna innritunar kæranda í HÍ fyrir skólaárið 2021-2022.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gísli Rafn lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Haraldur útskrifaður af sjúkrahúsi Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Alræmdur morðingi í lífshættu eftir árás Skrásetningargjaldið úrskurðað lögmætt Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sterk skilaboð frá Tusk Kosningum flýtt í Danmörku Kostnaður við götuhreinsun eykst ÁTVR í stefnumótun Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Eina tilboðið langt yfir áætlun Minntust Kjartans í Garðakirkju Líkir borginni við ofskreytt jólatré Fullyrðingar standast ekki Myndskeið: Kristrún nefndi uppáhaldskennara dóttur sinnar Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Nýjast á mbl.is » Gísli Rafn lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Haraldur útskrifaður af sjúkrahúsi Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Alræmdur morðingi í lífshættu eftir árás Skrásetningargjaldið úrskurðað lögmætt Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minntust Kjartans í Garðakirkju Kosningum flýtt í Danmörku „Auðvitað er þessi staða ekki góð“ Árangurinn á Íslandi greiddi götuna Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Eina tilboðið langt yfir áætlun Minntust Kjartans í Garðakirkju Líkir borginni við ofskreytt jólatré Fullyrðingar standast ekki Myndskeið: Kristrún nefndi uppáhaldskennara dóttur sinnar Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir