Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

265 milljónir í niðurgreiðslur vegna efnaskiptaaðgerða erlendis

Read Full Article →

246 einstaklingar fóru í efnaskiptaaðgerð erlendis árið 2024. Aðgerðirnar voru niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands. Heildarkostnaður Sjúkratrygginga nam rúmum 265 milljónum. Þetta kemur fram í svari Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra, við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokks. Þurfa að uppfylla skilyrði fyrir aðgerð Endurgreiðslurnar voru 137 árið 2022 og 231 árið 2023. Í fyrra voru 149 aðgerðir samþykktar, fram í nóvember. Þau sem sækja um að fara í efnaskiptaaðgerð erlendis, og fá samþykkta greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga, þurfa að uppfylla annað eftirfarandi skilyrða, ásamt þekktum fylgikvillum offitu. Líkamsþyngdarstuðull (BMI) yfir 40 kíló Líkamsþyngdarstuðull (BM) á bilinu 35-39,9 Mat sérfræðings þarf alltaf að liggja fyrir og ljóst að önnur úrræði hafi ekki gagnast. Einnig þarf að ljúka undirbúningsmeðferð hjá sérfræðingum og fá staðfestingu um eftirfylgni hérlendis, í kjölfar aðgerðarinnar.

Share this article