- What: Police in Iceland seize 60kg of Kratom, an opioid-like substance
- Impact: Kratom is illegal in Iceland and can be dangerous when mixed with other drugs
Lögreglan á Norðurlandi eystra lagði nýlega hald á tæp 60 kíló af fíkniefni sem kallast Kratom. Efnið, sem er ekki vel þekkt á Íslandi fannst í tveimur aðskildum málum í sendingum frá Hollandi samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Það hefur ekki fundist áður hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, en í litlu magni hjá öðrum embættum. Efnið átti að fara til viðtakanda á Norðurlandi en fer nú til rannsóknar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu lögreglu á Facebook segir að virka efnið í Kratom sé mítragýnin . Það hafi bæði örvandi áhrif en jafnframt deyfandi í stærri skömmtum. „Kratom duft er grænt að lit og líkist grænu te og fæðubótarefni. Kratom kemur frá plöntunni Mitragyna speciosa sem á uppruna sinn í Suðaustur-Asíu.“ Lögreglan segir Kratom ólöglegt hér á landi. Fólk er varað við notkun efnisins en erlendis sé efnið jafnvel selt undir fölskum formerkjum sem fæðubótarefni eða náttúrulyf. Efnið geti verið enn skaðlegra sé það notað með öðrum vímugjöfum.