- What: Reykjavík City Council decided to cancel the plan for a new youth school in Laugardal
- Impact: No immediate impact on cybersecurity or IT professionals
Borgarráð samþykkti í dag að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli í Laugardal, en til stóð að reisa skólann á svokölluðum þríhyrningi aftan við Skautahöllina. Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að finna eigi annan stað fyrir skólann. Það verði gert í samráði við hagsmunahópa í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu. Fyrri ákvarðanir ekki á traustum grunni byggðar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði tillöguna fram í morgun. Hún sagði það liggja fyrir að fyrri ákvarðanir hafi ekki verið nægilega vel ígrundaðar og því þurfi að vinna málið betur í samkomulagi við þá hópa sem málið varði. „Með uppbyggingu unglingaskóla í Laugardal verður til menntastofnun sem verður áhrifavaldur í lífi ungmenna í hverfinu í marga áratugi og setur mark sitt á allt annað skólastarf í Laugardalnum. Slík framkvæmd er af þeirri stærðargráðu að hún þarf að vera vönduð og standast tímans tönn,“ segir Heiða Björg. Í ljósi ákvörðunarinnar verður skipaður nýr starfshópur sem kallar ólíka hlutaðeigendur til samráðs um framtíðarsýn. Starfshópurinn kemur til með að endurskoða fyrri sviðsmyndir sem lagðar voru fram í skýrslu starfshóps um undirbúning framkvæmda árið 2023. Laugdælingar lögðust gegn tillögunni Tillagan, sem nú hefur verið felld niður, var samþykkt í borgarstjórn í desember 2024. Hún fól í sér byggingu nýs safnskóla fyrir unglinga í Laugardal, í áttunda til tíunda bekk, í Landholtsskóla, Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla. Safnskólinn átti að standa á svokölluðum þríhyrningi milli Skautahallarinnar og félagsheimilis Þróttar og Ármanns. Framkvæmdirnar voru umdeildar og sökuðu foreldrar í Laugardal borgaryfirvöld meðal annars um að svíkja fyrra samkomulag um skipulag skóla í hverfinu sem gerði ráð fyrir viðhaldi og viðbyggingu við alla þrjá skólana í hverfinu. Knattspyrnufélagið Þróttur gagnrýndi framkvæmdirnar einnig á sínum tíma. Þá sagði framkvæmdastjóri félagsins ákvörðunina koma flatt upp á félagið sem hafi fullan afnotarétt yfir svæðinu sem byggja átti skólann á. Hann sagði jafnframt að ákvörðunin hefði verið einhliða og að ekkert samráð hafi verið átt við forsvarsmenn Þróttar.