Fjarðarheiði, Hellisheiði og Holtavörðuheiði hefur verið lokað vegna veðurs. Vegagerðin og björgunarsveit vonast til að hægt verði að opna Hellisheiði á næsta klukkutíma. Björgunarsveit hefur losað umferðarteppu sem myndaðist þar og vinnur nú að því að skafa veginn. Fjarðarheiði opnar ekki fyrr en í fyrramálið. Þá var Holtavörðuheiði lokað fyrr í kvöld vegna óveðurs og verður hún ekki opnuð aftur fyrr en á morgun. Vegagerðin bendir á hjáleið um Brattabrekku og Laxárdalsheiði. Fréttin hefur verið uppfærð.